Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Hreint lífrænt ræktað kakósmjör


HREINT LÍFRÆNT RÆKTAÐ KAKÓSMJÖR
- frábært í konfekt- og andlitskremgerð!

Nýja lífrænt ræktaða kakósmjörið okkar frá RAW Chocolate Company er meiriháttar hráefni til konfektgerðar og uppistaðan í mörgum af bestu andlits- og líkamskremum veraldar. Þetta kakósmjör telst jafnframt til hráfæðis og því er fitan úr kakóbauninni, þ.e. kakósmjörið einstaklega næringarríkt, bragðgott og síðast ekki síst alger súperfæða fyrir húðina.Sumir segja að kakóbaunin sé eins verðmætasta afurð heims, en hjá okkur eru hún á mjög góðu verði. Dósirnar með hreina lífræna kakósmjörinu vega 230 gr og kosta 2.309 kr.
Hér er uppskrift af frábæru silkimjúku líkamskremi sem fengin er að láni frá einni vinsælustu heilsubúðinni í Covent Garden:
  • Tvær kúfaðar tsk. af býflugnavaxi eru bræddar yfir vatnsbaði.
  • 8 tsk af kakósmjöri er bætt við. Bræðið einnig.
  • Blandið við 100 ml af möndluolíu.
  • Takið af hitanum.
  • Í lokin er gott að blanda 2 til 5 dropum af uppáhalds kjarnaolíunni þinni saman við hverja 10 ml. af þessu undraverða kremi.
  • Geymist í kæli í um það bil mánuð.
Senda á Facebook