Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Hvernig gott er að styrkja lifrina!



Grunnurinn að góðri áætlun um að styrkja lifrina byggist á mataræði sem er í senn næringar- og trefjaríkt en einnig svo gott sem laust við eiturefni. Þesskonar matur lætur lifrina, og reyndar gallblöðruna, vinna eins og hún á að gera.

Margar fæðutegundir eru þekktar fyrir að ýta undir hreinsun lifrar og gallblöðru. Það besta sem þú gætir gert fyrir lifrina er að borða þrjá til sex skammta af eftirfarandi fæðu daglega. Og við tökum það fram að fæða þarf allra helst að vera lífrænt ræktuð, því lífrænt ræktað ber í sér nánast engin eitur- eða aukaefni sem setjast að í lifrinni, samanborið við það sem ekki er lífrænt ræktað.

Alfaafla spírur
Epli
Ætiþistlar
Aspas
Rauðrófur
Ber
Brokkkál
Spíruð brokkálsfræ
Rósakál
Kál
Hvítkál
Sellerí
Kirsuber
Kaffifífill
Kanill
Túnfífill
Endíva
Fennel
Hörfræ (möluð)
Hvítlaukur*
Engifer
Lecithin
Blaðlaukur *
Laukur *
Steinselja
Radísur
Sesamfræ
Spínat
Turmeric*
Valhnetur
Vatnakarsi

*Forðist ef þið eruð viðkvæm í maga eða eigið sögu um mikla magasýrumyndun.

Fyrir þá sem vilja ná sérlega góðum árangri mælum við að auki með góðum bætiefnum til þess að styrkja og hreinsa lifrina. Þar á meðal gæti eitthvað af því sem að ofan er talið verið til í formi bætiefna. Þekktasta bætiefnið til þess að hreinsa og styrkja og lifur er mjólkurþistill. Hann fæst frá ýmsum vönduðum heilsuvöruframleiðundum í Heilsuhúsinu.


Gott að vita:

Það tekur tvo til þrjá mánuði að hreinsa lifrina og gallblöðruna. Eftir þann tíma getur þú minnkað hina lifrarhreinsandi matarskammta og dregið úr inntöku lifrarhreinsandi og –styrkjandi bætiefna.

Engu að síður er gott að viðhalda hreinni lifur og það fæst best gert með því að huga sem oftast að því að hafa lifrarhreinsandi fæðu á hinum daglega matseðli.
Senda á Facebook