If you care umhverfisvænar heimilisvörur
Úrval umhverfisvænna vara eykst sífellt. Nú má fá einnig fá heilsusamlegar vörur til heimilisnota, vörur eins og bréfpoka undir nestið, bökunarpappír, kaffipoka, álpappír og pappírsform undir formkökur.
Ólíkt öðrum bréfpokum eru þessir umhverfisvænu pokar ekki vaxbornir með parafínvaxi og þaðan af síður bleiktir og svo litaðir eins og raunin er með margar tegundir bréfpoka. Þeir eru búnir til úr pappírsdegi úr endurnýttum norrænum grenitrjám. “If you care” bréfpokarnir henta vel undir nestið dag hvern, ekki síst fyrir skólabörnin. Og það er líka góð hugmynd að frysta ferskar kryddjurtir í bréfpokum. Vegna eiginleika bréfpokans verða þær enn sem ferskar þegar þær þiðna.
Bökunarpappírnn sem í boði er hefur ekki verið bleiktur og er hjúpaður með silikoni sem búið er til úr náttúrulegum efnum sem finnast í sandi. Hann er því algerlega eiturefnalaus, eins og reyndar allar “If you care” vörurnar. Þess má geta að í flestum sambærilegum bökunarpappír eru þungamálmar og klórefni sem notuð eru til bleikingar.
Ef þú vilt baka svokallaðar “cupcakes”, eða formkökur, fást einnig óbleikt og endurunninn pappírsform sem brotna niður í náttúrunni. Bæði bökunarpappírinn og kökuformin er laus við glúten og önnur efni sem valda ofnæmum. Báðar þessar heimilisvörur má nota hvort sem er í venjulegum bökunarofnum eða örbylguofnum. Óþarfi er að nota fituefni.
Þessar vörur eru með FSC-vottun, en FSC (Forest Stewardship Council) eru óháð samtök um verndun skóga heimsins, sjá
www.fsc.org .
Einnig bjóðum við upp á álpappír úr 100 % endurunnu áli sem má endurnýta aftur og aftur. Við framleiðslu hans er notuð minnsta mögulega orka sem hægt er.
Senda á Facebook