Íslenskar lækningajurtir gegn flensum og kvefi
Ásókn í náttúrulegar vörur eykst stöðugt um allan heim, ekki hvað síst hér á Íslandi þar sem er að finna gnótt af öflugum lækningajurtum. Margar þeirra geyma virk efni sem vinna gegn flensum og kvefi. Þær jurtir sem vitað er að hafa góð áhrif á þessa kvilla eru fjallagrös, blóðberg og hvönn sem við þekkjum líka í formi hinnar vinsælu jurtaveigar Angelicu. Allar þessar jurtir hafa nú verið rannsakaðar vísindalega með góðum árangri.
Íslensku fjallagrösin
Hin íslensku fjallagrös hafa lengi verið notuð við hósta og hæsi og öðrum óþægindum í öndunarfærum, auk þess sem þau styrkja ónæmiskerfið. Einnig eru þau notuð við lystarleysi og magaóþægindum, en það mun vera beisk lichensýra í grösunum sem virkar vel á magann. Margar góðar heimildir eru til um notkun fjallagransanna á Íslandi, þar á meðal birtist fróðleg grein eftir Hallgerði Gísladóttur í 4. tbl. Læknablaðsins árið 2000, segir m.a. skv heimildum úr Suður-Múlasýslu: "...ef fólk hafði vont kvef eða hósta, þótti gott að drekka sterkt grasate, byrgja sig síðan vel niður í rúm, helst svo menn gætu svitnað.” Annar úr sömu sýslu segist hafa haft það eftir móður sinni að hún hefði læknað föður hans af lungnabólgu með því að hella í hann sterku fjallagrasaseyði dag og nótt.
Meðal þess sem komið fram hefur í nútímarannsóknum á fjallagrösum er að virku efnin geta hindrað vöxt baktería, veira og krabbameinsfrumna og örvað virkni ónæmiskerfisins. Þetta kemur fram á vef ww.iceherbs.is sem er heimasíða Íslenskra fjallagrasa. Það fyrirtæki framleiðir margskonar heilsuvöru úr íslenskum fjallagrösum.
Blóðberg
Auk þess að vera afar vinsæl kryddjurt er blóðberg sem lækningajurt mest notuð gegn flensu og kvefi, sérstaklega lungnakvefi og öðrum lungnasjúkdómum þar sem þarf að eyða sýklum og losa um slím. Blóðberg er einnig mjög gott við ýmsum meltingarsjúkdómum, s.s. maga- og garnarbólgu. Blóðberg linar krampa í meltingarfærum og er þá gjarnan notað með öðrum jurtum. Gaman er að geta þess að sterkt te af jurtinni, drukkið fjórum til sex sinnum á dag, 2-3 daga í senn, er talið gott til að venja fólk af áfengisdrykkju. Þetta kemur fram í bók Arnbjargar Lindu Jóhannesdóttur, Íslenskar lækningajurtir. Mikil og áhugaverð veiruvirkni hefur fundist í íslenska blóðberginu, að því er kemur fram á vef www.bbl.is, málgagni bænda og landsbyggðar.
Hvönn
Hvönn sem við þekkjum best í formi jurtaveigarinnar, Angelica, er unnin úr ætihvannarfræjum. Fræ ætihvannarinnar hafa að geyma fjölmörg lífvirk efni sem hafa áhugaverða þýðingu hvað varðar forvarnir. Angelica er mikið notuð af fólki sem vill forðast kvef og flensu og af þeim sem þjást af kvíða.
Ætihvönnin hefur verið nefnd jurt norðursins, því þar þrífst hún best og hefur mesta virkni. Hvönnin hefur árhundruðum saman verið talin ein mikilvægasta lækningajurtin af Norður-Evrópubúum. Öll jurtin var notuð til lækninga, hvort heldur laufin, stilkarnir, fræin eða ræturnar. Dæmi um nokkra kvilla sem hvönnin er talin gagnast við eru: smit og eitranir, slím í öndunarfærum, brjósthimnubólga, lifrarkvillar, meltingartruflanir. Þetta kemur m.a. fram á vef www.sagamedica.is. Í bókinni Encyclopedia of Medicina Plants e. Andrew Chevallier segir einnig hvönnin auki blóðflæði og sé því einkar góð fyrir þá sem þjást af hand- og fótkulda.
Allar þessar jurtir koma við sögu í ýmsum vörutegundum sem fást í Heilsuhúsinu.
Senda á Facebook