Karlmenn vilja líka lífrænt vottuð gæði
North Wood herralínan frá Aubrey Organics er ný
Virkni og vandaðir eiginleikar Aubrey Organics vörulínunnar hafa lengi verið umtalaður í heimi hinna hreinu snyrtivara. Nýverið kom á markað ný lína fyrir karlmenn sem býr yfir þessum góðu eiginleikum, enda fer eftirspurn karlmanna eftir lífrænum gæðum ört vaxandi. Vörurnar fyrir karlmenn frá Aubrey Organcis eru þrjár: North Wood raksturskrem, North Wood nærandi rakspíri og Aubrey Organics rakakrem fyrir herra. Það þarf vart að taka það fram að allt eru þetta náttúrulegar gæðavörur sem innihalda aðeins lífrænt ræktuð efni. Þær þykja jafnframt sérlega virkar og góðar.
North Wood RAKSTURKREM
Til að fá mjúkan og kælandi rakstur, eins nálægt skeggrótinni og hægt er. Fyrir þægilegan, auðveldan og endurnærandi rakstur á hverjum degi. Róar húðina og verndar hana gegn rakstursbruna.
North Wood NÆRANDI RAKSPÍRI
Nærandi rakspíri/krem fyrir karlmenn með léttum ilmi sem kælir húðina og kemur í veg fyrir inngróna hársekki og bólur. Kremið róar nýrakaða húð og verndar hana gegn bólum og rauðum dílum eftir rakstur. Hreint, létt gel sem róar og mýkir og smýgur strax inn í húðina.
Aubrey Organics RAKAKREM FYRIR HERRA
Hægt er að halda húðinni hreinni og notalega mjúkri með þessu létta, ilmefnalausa rakakremi, sem hefur ótrúlega góða virkni, smýgur mjög hratt inní húðina og stoppar ekki í svitaholur. Blandan inniheldur hörfræ, eða Ligans, sem sýnt hefur verið fram á að hafi áhrif á náttúrulega olíuframleiðslu húðarinnar og dragi úr áhættu á þrálátri bólumyndum vegna inngróinna hára. Notist tvisvar á dag.
Allar Aubrey Organics vörurnar eru lífrænt vottaðar af USDA og NOP.
Sjá nánar um efnainnihald þessarar herralínu á www.aubreyorganics.com
Senda á Facebook