Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Kólesteról jafnvægi



Nýtt í Heilsuhúsinu:

“Kólesteról jafnvægi” – bætiefnablanda sem stuðlar að lækkun kólesteróls
 
Kólesteról jafnvægi“ er í hópi nýrra og afar spennandi vítamína með gula miðanum frá Heilsu. Það inniheldur nokkur virk efni sem vísindalegar rannsóknir sýna að geti stuðlað að lækkun kólesteróls.
 
Þetta nýja bætiefni inniheldur m.a. plöntusteróla í því magni sem mælt er með hjá Matvælastofnun Evrópu til að hafa þessi áhrif. Neysla miðast við 0,8 gr á dag. Einnig inniheldur Kólesteról jafnvægi guggul-extrakt, hvítlauk og policosanól, sem öll eru talin stuðla að lækkun kólesteróls, ráðlagðan dagskammt af fólínsýru (400míkrógrömm), sem og B6 og B12, kalki, kísil, curcumín og magnesíum sterat, sem er gott fyrir vöðva líkamans, þar með talið hjartavöðvann. Eins og flestir vita nú orðið er of hátt kólesteról, sérstaklega oxað kólesteról, mikill áhættuþáttur í myndun kransæðasjúkdóma.

Hér sjáum við nánar um helstu efnin í Kólesteról jafnvægi og gagnsemi þeirra:

Plöntusterólar eru einnig oft nefndir jurtasterólar. Rannsóknir hafa sýnt að plöntusterólar hindra að kólesteról úr dýraríkinu berist inn í blóðrásina.
Guggul-extraxt er unnið múkul trénu, sem vex víða á Indlandi og hefur lengi verið notuð í Ayurvedískum lækningum vegna þess að það er talið vinna bæði gegn kólesteróli og tríglýseríðum.

Hvítlaukur á sér líka mjög langa sögu sem lækningajurt en í honum er m.a. efnið metýl allýl trísúlfíð sem lækkar blóðþrýsting. Það hindrar einnig að blóðflögur kekkist sem minnkar líkur á blóðtappa og hjarta- og æðasjúkdóma.

Policosanól er efnasamband sem finnst í reyrsykri og rannsóknir hafa sýnt að lækki kólesteról. Það dregur úr líkum á blóðtappamyndun, eykur blóðflæði, dregur úr vondu kólsteróli (LDL) og eykur það góða (HDL). 

Önnur mikilvæg efni sem eru að finna í Kólesteról jafnvægi eru fólínsýra sem gegnir mikilvægu hlutverki við myndun rauðra og hvítra blóðkorna. B-6 sem líkaminn þarfnast til blóðmyndunar og til að nýta B-12 vítamín sem einnig er mikilvægt fyrir eðlilega blóðmyndun, kalk en skortur á því veldur m.a. hækkuðum blóðþrýstingi, kísill sem örvar efnaskipti og myndun fruma, curcumín sem er þekkt bólguhemjandi efni og magnesíum sítrat sem er eins og margir vita afar gott fyrir hjartavöðvann.

Ráðlögð notkun á Kólesteról jafnvægi er 3 hylki á dag. Hvert glas inniheldur 60 hylki.
Senda á Facebook