Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Læknavísindin binda miklar vonir við túrmerk



Gegn bólgum, liðagigt, magavandamálum, ofnæmi, brjóstsviða og lifrarvandamálum.

Túrmerik, þetta heiðgula krydd sem hefur verið notað í indverska matargerð í meira en 2500 ár og er helsta uppistaðan í karrýi, er að vekja mikla athygli vestrænna vísindamanna um þessar mundir. Í öllum helstu fréttamiðlum heims var nýlega greint frá því að tilraunir með nýtt lyf við Alzheimer, byggt á efnasambandi í karrýkryddi, vekti vonir manna um að hægt væri að stöðva sjúkdóminn og bæta minni sjúklinga sem þjást af völdum hans. Pálmi V. Jónsson yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum sagði af því tilefni í frétt á visir.is 17. desember sl., rannsóknina mjög athyglisverða. En ekkert lyf sem nú er á markaði hefur sömu virkni og þetta nýja lyf, svo vitað sé.

Túrmerik, sem hefur verið notað sem krydd, lækningajurt og litarefni í Suðaustur-Asíu frá því um 600 fyrir Krist, er kærkomin inn í vestrænan samtíma þar sem segja má að bólgur í frumum líkamans, sem valda margskonar hrörnunarsjúkdómum, fari um eins og faraldur. Sumpart er það rakið til lélegs mataræðis og sumpart streitu sem vitað er að hefur oxandi eða tærandi áhrif á starfsemi líkamans.

Það er umfram allt rót túrmerik jurtarinnar sem menn horfa til því hún er ákaflega rík af jurtanæringarefninu kúrkúmu en það er jafnframt það efni sem gefur túrmerikinu hinn djúpa gula lit. Í Ayurvedískum og kínverskum lækningum hefur túrmerik verið notað um aldir gegn bólgum, liðagigt, magavandamálum, margskyns ofnæmi, brjóstsviða og lifrarvandamálum. Ekkert af þessu virðist fjarri lagi ef rýnt er betur í nýlegar vestrænar rannsóknir. Dæmi um það er blóðsykurójafnvægi og insúlín ónæmar frumuhimnur sem hafa úrslitaáhrif um framköllum bólguástands í líkamanum. Sýnt hefur verið fram á að kúrkúmín kemur jafnvægi á blóðsykurinn og snýr á ónæmar frumhimnur með því að fjölga insúlín viðtökunum og með því að efla viðtaka bindingu insúlíns. Þá hefur verið sýnst fram á það vísindalega að kúrkúmín dregur úr virkni ensíma sem geyma sykrur og virka þannig á lifrina að hún fækkar og dregur úr virkni ensíma sem sleppa frá sér sykri í blóðið. Rannsóknir á tilraunastofum hafa líka leitt í ljós að kúrkúmín dregur úr glúkósa og þríglýseríði í blóði. Og svo er hitt sem er ekki síður mikilvægt að huga að en þegar blóðsykurójafnvægi á sér stað án fullnægjandi temprunar myndast svokölluð glúkósa þvertenging við virk prótein. Nýju mólekúlin sem þá verða til eru kölluð Advanced Glycolytic Enzymes (AGE’S). Þau eyðileggja frumuhimnur, lífsnauðsynleg ensím og viðhalda bólgum í líkamanum. Kúrkúmín hamlar myndun þessara hættulegu efna og slekkur jafnframt á bólgukveikjunni.

Túrmerik, þetta eitt öflugasta andoxunarefni sem sögur fara af eykur með öðrum orðum blóðflæði og þar með teygjanleika og þanþol æða. Og þannig kemur það jafnvægi á blóðþrýsting og bætir hjarta- og æðakerfi og kemur í veg fyrir skemmdir á innri líffærum, þar á meðal heila og það er einmitt það sem vísindamenn horfa til varðandi Alzheimer sjúkdóminn og jafnvel Parkisons sjúkdóminn einnig. Gróandinn í húðinni eykst að sama skapi og jafnframt dregur kúrkúman úr bólgusjúkdómum á borð við sóríasis og exem.

Það leikur því engin vafi á að sem flestir ættu að bæta túrmeriki við í sitt daglega líf en samkvæmt vísindamönnunum eru allt sjö til tíu ár þar til hið nýja lyf lítur dagsins ljós. Og túrmerik má nota með margskonar hætti. Heilsuhúsið selur m.a. túrmeric í formi bætiefnis frá Solaray sem unnið er úr rót túrmerik jurtarinnar og geymir 100% svokallað Curcuma longa. Þá fæst það einnig í formi krydds frá Sonnentor sem er 100% náttúruleg og lífrænt vottuð afurð.


Hér kemur frábær bólgueyðandi drykkur sem allir ættu að eiga í ísskápnum á nýju ári:

1 bolli sítrónusafi (úr fjórum lífrænum sítrónum)
4 bollar vatn
1 tsk turmeric
1 tsk kanill
Himalaya salt á hnífsoddi
½ tsk stevía eða 1 msk agave
1tsk af rifinn engifer, ef vill

Heimildir:
http://visir.is/efnasameind-skyld-karrikryddi-hugsanlega-laekning-vid-alzheimer/article/2011111219152
http://www.naturalnews.com/031461_turmeric_superfood.html#ixzz1h56trfXM


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook