Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Litlu næringarrisarnir

 

Litlu risarnir er lýsing sem gjarnan er notuð yfir þær hráfæðistegundir sem eru stútfullar af næringarefnum, steinefnum, jurtanæringarefnum,  andoxunarefnum og meltingarensímum. Fyrir þá sem ekki vita er margsannað vísindalega að andoxunarefni hægja á öldrun líkamans og viðhalda skerpu hugans og einnig er talið að þau geti hindrað myndun krabbameina og öldrunarsjúkdóma. Eins og nafnið bendir til þjóna meltingarensím einkum meltingunni og sjá til þess að næring fæðunnar nýtist okkur að fullu. Hráfæði er aldrei hitað yfir 47°C því við hærri hita en svo deyja meltingarensímin.

Hér má sjá það fjölbreytta úrval af hráfæði sem fæst í Heilsuhúsinu en það er frá The Raw Chocolate Company og er auðvitað unnið samkvæmt bestu gæðastöðlum, er án allra aukaefna, og er hrein næringarsprengja. Best er að nota þessar tegundir hráfæðis í hristinga en einnig að nýta sér það eins og hugmyndaflugið leyfir. Það er óhætt að fullyrða að mikil bylgja hráfæðisáhuga gangi nú yfir landið og hér er eitt af því marga sem Heilsuhúsið leggur af mörkum til þess:

Hráfæðis hvít mórber (White Mulberry)
Hvít mórber eru sæt og bragðast eins og karamella. Börnum þykja þau sérlega góð. Hér er um að ræða hreint náttúruafl sem er lífrænt vottað og stútfullt af vítamínum og steinefnum. Rannsóknir hafa sýnt að í mórberum eru mikið af öflugum andoxunarefnum eins og resveratróli (sem finnst einnig í hýði vínberja), anthocyaníni og polyphenóli, en þessi efni eru öll eru þekkt fyrir að vinna gegn krabbameinum og hjartasjúkdómum.
Hvít mórber eru frábært krakkasnakk og henta sérlega vel í eftirrétti, út á morgunkornið, í konfektgerð eða í bakstur. Þau passa að sjálfsögðu einnig í allskyns hráfæðishristinga.

Hráfæðis açai-duft
Frostþurrkað açai-duft úr regnskógum Brasilíu hefur djúpt og ríkulegt bragð og líkist helst blöndu af berjum með súkkulaði. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að açai-berin eru ein andoxunarefnaríkasta afurð jarðar og hafa gjarnan verið notuð af brasilískum knattspyrnumönnum til að efla þol og styrk. Þau innihalda að auki lífsnauðsynlegar fitusýrur, ásamt próteini og trefjum. Duftið er lífrænt vottað.

Duftið er frábært á morgunmúslíið og ómissandi í hráfæðishristinga, jafnvel í mjólkurhristinga fyrir þá sem vilja. Açai-duft er einn besti orkugjafi út í daginn sem völ er á.

Hráfæðis kakóbaunir og kakóduft
Lífrænt vottaðar, sólþurrkaðar kakóbaunir og –duft frá Ekvador eru með dökku súkkulaðibragði og afar bragðmiklar. Þetta er kakó beint af náttúrunnar hendi. Það hefur lágt fituinnihald og er uppfullt af andoxunarefnum og steinefnum á borð við magnesíum, kalk og járn. Kakóduftið er frábært í bland við kakóbaunirnar út á hráfæðishristinginn, en með því má nota allt sem þú getur hugsað þér með kakói, t.d. kókosvatn og –fita, chilli, mynta, vanilla, gojiber, açai-duft og/eða mórber. Hér er um að gera að nota hugmyndaflugið. Þá má líka nota duftið í allskyns búðinga eða bakstur - en munið að næringarinnhaldið minnkar til muna ef hitinn fer yfir 47°C. Kakóbaunirnar er frábærar út á morgnkornið, í salöt og í eftirrétti og auðvitað má líka baka úr þeim(sjá nánar grein um kakóbaunina annarsstaðar í blaðinu).

 

Hráfæðis goji-ber
Sólþurrkuðu goji-berin frá Kína minna um margt á krisuber og innihalda einnig mikið af vítamínum og steinefnum. Goji-ber hafa verið hluti af matarmenningu Kínverja og Tíbeta um aldir og eru sögð draga úr hjartasjúkdómum og sykursýki. Þau eru auðug af járni, kopar og kalki og eru frábært snakk, hvort sem er fyrir börn eða fullorðna. Þau bragðast vel í salötum, í eftirrétti og út á morgunkornið. Þá eru þau frábær í hráfæðishristinga. Mörgum þykir gott að láta þau liggja í bleyti um það bil hálftíma áður en þeim er blandað út í hristinginn.

 

Frísklegur hráfæðishristingur

með kakóbaunun og –dufti, açai-dufti,  goji-berjum og mórberjum

Þessi hristingur eins stútfullur af vítamínum, andoxunarefnum, steinefnum, snefilefnum og ensímum og hugsast getur. Hann uppfyllir öll skilyrði daglegrar næringar og gott betur. Þessi hristingur er innblásinn af David Wolfe, sem er einn helsti sérfræðingur heims í hráfæði.

 

4 bollar vökvi - má vera vatn, heitt eða kalt te, kókoshnetuvatn eða möndlumjólk

3 msk hrátt kakóduft

1 msk kakóbaunir

3 msk goji-ber, eða blanda af mórberjum og goji-berjum

1 tsk açai-duft

1-2 msk sætuefni, t.d. hrátt hunang eða agave-síróp

1 – 3 bollar frosin ber, t.d.íslensk bláber eða hindber

1 msk prótein, t.d. hrísgrjónaprótein

1 msk aloe vera-gel (má sleppa)

örlítið himalaya-salt

 

Setjið allt í blandara og maukið þar til blandan er silkimjúk. Ef þið viljið þykkja hristinginn er gott að blanda c.a ½ avakadói saman við. Ákaflega bragðgóð næringarsprengja.

Verði ykkur að góðu!

 

 

 

 

 

Senda á Facebook