Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Litlu næringarrisunum fjölgar


Kókospálmasykur, hampprótein og blómafrjókorn eru ferskir meðlimir hráfæðisfjölskyldunnar!

 

Móðir jörð er miklu gjöfulli en flest okkar grunar. Nú fæst í Heilsuhúsinu sérlega bragðgóður kókospálmasykur sem hefur lágan sykurstuðul, eða GI 35 (55 eða minna flokkast sem mjög lágur sykurstuðull), og má nota í hvaða uppskrift sem er, hampprótein (hemp) sem margir fullyrða að sé fullkomnasta próteinið sem náttúran gefur af sér, hampfræ sem eru auðvitað sömu gjöfum gædd og sérlega bragðgóð og blómafrjókorn (bee pollen) sem er í senn prótein-, ensím-, og andoxunarrík.
Aðrir meðlimir Raw Chocolate Company fjölskyldunnar sem þegar njóta mikilla vinsælda hér á landi, og eru þekkt undir viðurnefninu Litlu næringarrisarnir, eru m.a. hrátt kakóduft og -baunir, mórber (mulberries) og úlfaber (gojiber
).


Kókospálmasykur í hvað sem er
Kókospálmasykur, sem er unninn úr safanum af blómahnappi kókospálmans, hefur lágan glycemic stuðul (GI) - sem er mælikvarði á áhrif kolvetna á blóðsykursmagnið - og er ríkur af lífsnauðsynlegum vítamínum og amínósýrum. Hann er brúnn að lit, hefur góða fyllingu, ber karamellubragð og kemur algerlega í stað hvíts eða brúns sykurs í hvaða uppskrift sem er.
Kókospálmasykurinn er unnin í tveimur skrefum: Þegar kókostréð er í fullum blóma tappa bændurnir safanum af trénu og safna í bambustunnur. Eftir það er safinn þurrkaður eða hitaður, þó algerlega innan þess ramma sem hráfæðishitun leyfir. Þannig verður hann að þykku sírópi og síðan að kristöllum.
Kókospálmasykur lítur út eins og brúnn sykur en ber meira karamellubragð. Þar sem Raw kókospálmasykurinn er lífrænt vottaður og lítið meðhöndlaður getur verið blæbrigðamunur á honum frá uppskeru til uppskeru sem gerir hann enn áhugaverðari.

Hamp prótein – próteinríkara en fiskur og kjöt
Talað er um hampprótein sem hið fullkomna jurtaprótein því í hverju grammi er að finna meira prótein en í fiski, kjöti eða mjólkurvöru. Hamprótein er einnig frábær uppspretta fitusýra, trefja, blaðgrænu og járns. Hamp próteinið er mjög gott út í boostið og safana en líka mjög gott til baksturs. Því er gjarnan haldið fram að hamp próteinið sé besta próteinið sem náttúruna gefur af sér enda uppbyggingin nánast sú sama og í líkama mannsins.

.
Hamp fræ – auðmeltanleg, próteinrík og bragðgóð
Hráfæðis hampfræ eru sérlega bragðgóð enda bera þau bragð af hnetum. Þau meltast auðveldlega þrátt fyrir að vera jafn próteinrík og raunin er. Í þeim eru bæði 22 amínósýrur og fullkomið jafnvægi fitusýra. Þessi bragðgóðu fræ eru frábær út á salatið og morgunkornið og einnig út í morgunboostið. Þess má geta að hampfræin eru laus við svokallaða oligosaccharides sem er efni sem getur valdið lofti í meltingarveginum.

Blómafrjókorn styrkja ónæmiskerfið
Blómafrjókornin frá Raw Chocolate Company eru mjög rík af jurtapróteinum og sérlega næringarrík. Þau geyma mörg B-vítamín, steinefni, bíóflavóníða og ensím. Þegar minnst er á blómafrjókorn tengja margir þau við ofnæmi en þótt ótrúlegt megi virðast eru blómafrjókorn einmitt tekin inn til að styrkja líkamann gegn ofnæmi. Þar sem blómafrjókorn eru einstaklega öflugt næringarefni, eru þau mest notuð við sleni, þreytu og slappleika, einnig almennt til að auka þrek, og viðhalda góðri heilsu.

.Sjá nánar á http://www.therawchocolatecompany.com/










Senda á Facebook