Lumessence Lift frá Aubrey Organics
Andlits- og augnkrem sem minnkar djúpar hrukkur nærri 60%
Lumessence Lift andlitskremið, markar tímamót í umhirðu andlitshúðarinnar. Þetta stinnandi og endunýjandi andlitskrem inniheldur m.a. CoQ10 fitukorn, sem sannanlega endurbyggja andlitshúðina og gera hana í senn stinna og silkimjúka. Með reglulegri notkun Lumessence Lift dregst húðin meira og meira saman; fíngerðar línur minnka og verulega dregur úr djúpum hrukkum, eða um 57%. Þetta vandaða andlitskrem viðheldur samfelldum raka í húðinni í átta klukkustundir eftir notkun. Best fer á því að nota kremið daglega og innan fárra vikna verður framúrskarandi árangur öllum augljós.
Lumeessence augnkremið, sem fengist hefur í Heilsuhúsinu um nokkurt skeið, hefur margsannað gildi sitt og notið mikilla vinsælda. Það er staðreynd að þeir sem hafa notað Lumessence augnkremið tvisvar á dag í 28 daga finna á sér mikinn mun. Ummæli þeirra sem notað hafa þetta augnkrem eru nær öll á þá leið að hrukkum fækki og útlitið verði bæði unglegra og frísklegra. Hér er ekki um að ræða bábiljur einhverra kvenna í leit að æskuljóma, heldur eru þessar fullyrðingar studdar vísindalegum rannsóknum. Sömu góðu eiginleikana er að finna í bæði Lumessence andlits- og augnkreminu.
Margir spyrja hver leyndardómurinn sé, en hann er fólginn í sérstöku hafrapróteini sem aðeins má finna í Lumessence, en það kemur auðvitað fleira til því Lumessence kremin innihalda að auki mikinn raka og þrjár tegundir fitukorna, svokölluð lípósóm, og.síðast en ekki síst þörungakraft. Frekari upplýsingar um hann og fleira er að finna í rammanum.
Galdur Lumessence Lift andlitskremsins er fólginn í:
Þörungakrafti sem þéttir húðina og gerir hana stinnari og yngri með reglulegri notkun. Rannsóknir sýna að dvínandi ljómi húðar stafar af eyðandi sindurefnum af völdum streitu, en streitan dregur úr teygjanleika húðarinnar svo að kollagenþræðir hennar rýrna. Úr þessu má þó draga verulega með notkun rétta andlitskremsins með rétta innihaldinu. Þörungakraftur er eitt fárra efna sem getur spornað við þessari þróun, snúið henni við og byggt upp húðina að nýju.
CoQ10 fitukornum (lípósóm) hefur áhrif á lögun frumnanna vegna andoxandi og verndandi eiginleika.
Hafrapróteinum sem draga verulega úr hrukkum. Með vísindalegum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að hafraprótein draga úr fíngerðum hrukkum um allt að 34% og úr djúpum hrukkum um allt að 57%, sem er einstakur árangur. Hafraprótein stuðla auk þess að því að halda húðinni rakri í allt að 8 tíma.
Nærandi og vítamínríkum fitukornum sem flytja rakann og næringarefnin í kreminu smátt og smátt inn í húðina yfir daginn. Um leið sjá náttúruleg alfa-hýdroxý fitukorn um að endurnýja húðfrumurnar.
Það þarf vart að taka það fram að Lumessence er 100% náttúrleg og lífræn afurð.
Sjá nánar um rannsóknirir og innihald á www.aubrey-organics.com
Senda á Facebook