Nokkur góð ráð gegn flösu

Mörg okkar eiga slæma hárdaga og aðrir enn verri hárdaga ef þeir þurfa að kljást við flösu. Flasa getur ekki bara orsakað mikil óþægindi í hársverðinum heldur líka valdið kláða og pirringi. Þar sem flasa er oftar en ekki sýnileg getur hún einnig valdið fólki félagslegum óþægindum.
Þeir sem berjast við flösu standa frammi fyrir því að úr hársverðinum hrynur endalaust af dauðri húð sem endurnýjar sig á miklum hraða. Enn hefur læknisfræðinni ekki tekist á negla niður hvað veldur flösu en vísindamenn vita engu að síður að fæði, streita, kalt veður, slök heilsa og mikil notkun allskyns hárvara getur örvað flösumyndun. Aðalsökudólgurinn er líklega sveppasýking af völdum Malassezia sveppsins sem étur upp olíuna í húðinni. Þótt þennan svepp sé vissulega einnig að finna í heilbrigðum hársverði þrífst hann sérstaklega vel í hári þeirra þar sem þessi sveppur hefur búið óhóflega um sig.
Margar náttúrulegar leiðir eru til að fást við flösu sem skilað hafa góðum árangri. Hér eru bestu náttúrulegu dæmin um það:
Tea tree olía: Flest ef ekki öll náttúruleg sjampó gegn flösu innihalda tea tree olíu. Það er vegna þess að hún virkar á margan hátt eins og sýklalyf, er sótthreinsandi og sveppadrepandi.
Zink: Þetta lífsnauðsynlega steinefni er einnig að finna í mörgum tegundum flösusjampós. Þetta steinefni kemur jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar og eflir ónæmiskerfið.
Omega 3 fitusýrur: Má einkum finna í fiski á borð við lax og síld en einnig í valhnetum, canola, sojabaunum, hörfræjum og hampi. Hún hjálpar líkamanum við eðlilega olíuframleiðslu sem slær á sveppamyndunina.
B-vítamín: Er alveg jafn nauðsynlegt heilbrigðum hársverði og omega 3. B-vítamín er helst að finna í grænu laufmiklu grænmeti, heilkornum, sojabaunum, avakadó, banönum og auðvitað góðum bætiefnum.
Austrænar lækningar: Sýnt hefur verið fram á að flasa minnkar við nálastungur, þrýstipunktameðferð og höfuðstöðuna sem er iðkuð í jóga. Þessar aðferðir auka jú allar blóðflæðið til höfuðsins.
Heimild:
http://www.naturalsolutionsmag.com/beauty/natural-radiance/natural-radiance—rx-dandruff?utm_source=ns&utm_medium=email&utm_campaign=news122811
Senda á Facebook