Bylting á framleiðslu Q-10 sem nú fæst loks í formi andoxunarefnis:
Q-10 getur snúið á skaðlegan lífsstíl
- Vísindinalega staðfest að ekkert bætiefni hefur víðtækari áhrif á starfsemi líkamans og hleður hann betur af orku
Árið 1976 færðu japönsk yfirvöld heimsbyggðinni þær framúrskarandi fréttir að Kóensímið Q-10, á latínu Ubiquinone (þýðir efni sem finnst allstaðar í náttúrunni), væri eitt þeirra lífsnauðsynlegu efna sem héldu líkamsstarfseminni gangandi. Framleiðendur eyddu næstu tíu árum í að reyna að fullkomna Q-10 en stóðu allir frammi fyrir sama vandamálinu: Hvernig er mögulegt að koma nægjanlegu magni af Q-10 inn í blóðið? Vísindamenn hafa náð þokkalegum árangri en enginn jafn góðum og Dr. Tatsumasa Mae, sem nýlega afrekaði það að breyta tveimur bókstöfum á rannsóknarstofunni – þ.e. ubiquinoNE í ubiquinOL - og breytti um leið gangi næringarsögunnar. Þetta þýðir einfaldlega að nú má loks fá Q-10 í formi andoxunarefnis.
Uppgötvun Dr. Mae - sem vill svo skemmtilega til að vinnur á rannsóknastofunni þar sem Heilsu-vítamínin (Guli miðinn) eru framleidd, er fólgin í sérstakri gerjunaraðferð, en með henni hefur honum tekist að halda Q-10 stöðugu í sinni upprunalegu mynd. Þannig nær það alla leið inn í frumur líkamans. Þar með helst Q-10 sem andoxunarefni (ubiquinOL) í stað þess að oxast (ubiquinoNE) þegar það kemst í tæri við súrefni, eins og það hefur gert hingað til. Þetta sparar líkamanum ómælda orku við að reyna að breyta efninu sér í hag. Þessi tímamót í vinnslu Q-10 hljóta að teljast risaskref fram á við. Raunar mætti kalla þau vísindalegt stökk sem getur haft mikil áhrif á velferð okkar allra. Því sannleikurinn er sá að Q-10 er að finna í hverri einustu frumu líkamans, þar sem efnið gegnir því hlutverki að breyta næringu í orku. En þótt Q-10, sem vel að merkja er fituleysanlegt, sé að finna í hverri einustu líkamsfrumu safnast það sérstaklega fyrir í vöðunum, þar með talið hjartavöðvanum, en einnig í lifrinni, nýrunum og briskirtlinum. Um það bil 50% Q-10 í líkamanum er geymt í hvatberum frumanna.
Nýja Q-10 smýgur inn í blóðrásina – rannsókn
90% alls þess Q-10 sem finnst vefjum okkar, líffærum, frumum og hvatberum er í formi andoxunarefna. Til þess að viðhalda heilbrigði hjarta, heila og annarri starfsemi líkamans er nauðsynlegt að 3.5 míkrógrömm af Q-10 séu í hverjum millilítra (mcg/ml) í blóði okkar. Ef fólk ætlar að ná þessu fram með „gamla laginu“ þarf það í mörgum tilfellum að taka inn 100 mg af Q-10 á klukkustundar fresti í allt að tólf tíma á dag. Það er ekki bara dýrt heldur einnig afar óþægilegt. Hér erum við því að tala um 21. aldar Q-10 sem bókstaflega smýgur inn í blóðrásina í sínu rétta formi, sem er andoxunarefni. Þessu til stuðnings má benda á tilraun sem gerð var á rottum sem voru komnar til ára sinna. Þeim voru gefin 100 mg af þessu nýuppgötvaða (ubiquinol) Q-10 efni. Q-10 magnið í blóðinu náði hámarki 6.0 (mcg/ml) og eftir átta klukkustundir var magnið enn 4.5 (mcg/ml)í blóði tilraunadýranna! Til samanburðar má geta þess að þær sem fengu gömlu útgáfuna af Q-10, eða ubiquinone (oxað), mældust með að hámarki 2.1 (mcg/ml) í blóðinu og eftir klukkustund hafði magnið fallið niður í 1.2.
Margar ótvíræðar rannsóknarniðurstöður
Til að skilja enn betur mikilvægi þessa lífsnauðsynlega fituleysanlega efnis má benda á að Q-10 hefur á bak við sig 39 lyfleysu rannsóknir frá Japan, Bandaríkjum, Ítalíu, Þýskalandi, Svíþjóð og fleiri löndum. Yfir 1000 greinar hafa verið birtar um Q-10 í virtum vísindatímaritum á síðustu 50 árum. Í öllum þessum rannsóknum og vísindagreinum stendur upp úr að Q-10 kemur í veg fyrir heilablóðföll og hjartaáföll með því að hindra að kólesteról safnist fyrir í æðunum. Auk þess lækkar Q-10 blóðþrýsting og síðast en ekki síst yngir upp frumur hjartavöðvans.
Það sem kemur fast á hæla þessa er að Q-10 hindrar taugaskemmdir, rýrnum heilafrumna, óeðlilegan frumuvöxt, öndunarfæravandamál, sýkingar í tannholdi, vöðvarýrnun, ójafnvægi blóðsykurs, húðskemmdir, höfuðverki, offitu og ófrjósemi. Þessar fjölmörgu rannsóknarniðurstöður sýna jafnframt að ekkert efni hefur jafn víðtæk áhrif eða fleiri vísindalegar rannsóknir á bak við sig.
Rökstuðningur dr. Dwight Lundell hjartaskurðlæknis
Vel upplýstir læknar og skurðlæknar hvaðanæva að úr heiminum eru nú farnir horfa allt öðrum augum á helstu orsakir hjartaáfalla. Fáir þekkja hjartað betur en Dr. Dwight Lundell hjartaskurðlæknir, sem framkvæmt hefur yfir 5000 opnar hjartaaðgerðir á 25 árum. Í hinni vinsælu bók hans The Great Cholesterol Lie kemur fram að oxun sé aðalvaldur hjartasjúkdóma, ekki kólesteról. Hér er hans helsti rökstuðningur:
Oxun: Oxun stafar af hættulegum mólekúlum (eyðandi sindurefnum) úr umhverfinu og lélegu mataræði. Á sama hátt og rakt járn ryðgar rekja óæskileg efni í því sem við neytum daglega upp fíngerða þræði æða okkar.
Í sannleika sagt:
Bólgur: Ímyndið ykkur ónæmiskerfið að reyna að gera við bólgu og þrota, þar á meðal hjartasjúkdóma, líkt og það sé að reyna að laga ryðgað járn. Þannig er kólesteról aðeins einn margra orsakavalda, ekki eini orsakavaldurinn.
Þessi grimmu mólekúl, þ.e. eyðandi sindurefnin, sveima allt í kringum okkur, rífa göt á æðar okkar, skemma (oxa) kólesterólið og éta upp vefina eftir endilöngu. Oxun hefur afgerandi áhrif á hjartasjúkdóma, krabbamein og öldrun fyrir aldur fram. Í raun er ekkert jákvætt við oxun, en kólesterólið getur unnið mörg góðverk, t.d. að framleiða hormón sem skipta sköpum fyrir heilsu okkar. Sjáið til, ekkert heilbrigt kólesteról veldur skaða, aðeins oxað kólesteról.
Í viðleitni sinni til að endurbæta æðarnar fer ónæmiskerfið í fluggírinn og ræðst til atlögu með oxað kólesteról í farteskinu. Þegar fólk sker sig á fingri kemur oxað LDL kólesteról til sögunnar ásamt frumum frá ónæmiskerfinu og gerir við. Ef skaðinn er minniháttar þarf ónæmiskerfið aðeins að sýna lítilsháttar viðbrögð. Ef hins vegar eyðandi sindurefni eru stöðugt að ráðast á æðarnar, sem þá oxast, leiðir það hins vegar af sér krónískar bólgur. Á sama hátt og bráð bólga er heilandi getur krónísk bólga verið banvæn.
Hvernig á að forðast bólgur
Þannig myndar oxað LDL kólesteról óværu á veggjum æðanna, skaðar þær og orsakar bólgur. Nú ættum við að vita hver er helsti orsakavaldur hás blóðþrýstings, heilablóðfalla og hjartaáfalla, sem þýðir að þá getum við snúið þróuninni við.
Næstu skref eru reyna að koma í veg fyrir að þessar slæmu systur, oxun og bólgur, nái tökum á líkamanum sem á sama tíma dregur úr krafti hjartans. Það getur bæði leitt til langvarandi lyfjanotkunar og/eða skurðaðgerða.
Saga Q-10 á Íslandi!
Á fréttasíðum Morgunblaðsins 1. júlí árið 1994 var greint frá því að nú fengist Q-10 í fyrsta sinn hér á landi án lyfseðils. Í þeirri frétt sagði m.a. frá danska lækninum dr. Knut T. Flytlie, sem hafði gefið út bók um Q10 sem hann skrifaði með blaðamanninum Bjorn F. Madsen. Í bókinni segir dr. Flytlie að Q-10 sé nauðsynlegt líkamanum til að hann starfi eðlilega og til að upptaka næringarefna úr fæðu sé sem mest. „Með aldrinum minnkar geta lifrarinnar til að umbreyta efnum í Q10, einmitt þegar við þurfum mest á því að halda. Ónæmiskerfið veikist. Jafnframt hækkar blóðþrýstingur og hjarta- og kransæðasjúkdómar herja á okkur. Samhengi er milli þessara sjúkdóma og of lítils magns af Q10.“
Í Heilsuhringnum sama ár, 1994, skrifar Sigríður Halblaub um Q10. Hún segir m.a. að Svend Aage Mortensen, yfirlæknir á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn, setji sjúklinga sína á Q 10-kúr áður en þeir fara í aðgerðir og að rannsóknir hafi sýnt fram á gagnsemi efnisins gegn ýmsum krankleika, t.d. hjartanauð, hækkuðum blóðþrýstingi, óreglulegum hjartslætti og tannholdsbólgu. Auk þess styrki það ónæmiskerfið.
Þetta voru um það bil þær upplýsingar sem lágu fyrir um Q-10 árið 1994, en síðan hefur mikil þekking bæst við.
Stenst tímans tönn og gott betur
Í upphafi beindist áhugi manna á Q-10 einkum að virkni þess á hjarta- og æðakerfið en með tímanum hefur komið ljós að virkni þess er mun víðtækari. Q-10 bjargar einnig frumum og því DNA sem liggur undir skemmdum í líffærum okkar, beinum, húð, hári og augum. Það yngir upp lungun, lifrina, hjartað og hugann og síðast en ekki síst endurnærir alla vöðva líkamans. Andstæða þess alls á sér stað ef nægt magn Q-10 er ekki fyrir hendi.
Dr. Stephen Sinatra, höfundur bókarinnar The Coenzyme Q-10 Phenomenon segir m.a. í bók sinni að þegar við höfum ekki nóg af Q-10, eða það minnkar um 25%, veiki það líffæri okkar. Falli um 75% geti það valdið alvarlegum vefjaskemmdum og jafnvel dauða.
Vísindaleg rannsókn sem birt var í riti Clinical Investigation vitnar um það að lágt magn Q-10 samfleytt í 6 mánuði hafi verið vísbending um yfirvofandi dauða 94 sjúklinga.
Tvíþættur kraftur Q-10
Að sjálfsögðu hlyti hvert það bætiefni sem býður eyðandi sindurefnum fullkomlega birginn þ.e. afoxar kólesteról og stöðvar rýrnun á vefjum, heila, hjarta, lungum og lifur, að vera Guðs gjöf. Við gætum líklega endurritað örlög okkar með slíkt efni að vopni.
Við höfum líka ýmis efni sem gera sitt gagn, en ekkert þeirra kemst í hálfkvisti við Q-10. Q-10 er ekki aðeins eitthvert öflugasta andoxunarefnið (ryðvörnin) sem um getur, samkvæmt fjölda vísindalegra rannsókna, heldur má segja að það hafi einnig áhrif á sjálfan lífsneistann. Hér er átt við eftirfarandi: Þar sem frumur líkamans eru búnar til úr frumeindum (atómum) er drifkraftur manneskjunnar í bókstaflegri merkingu frumeindaorkan. Þetta er kallað adenosine triphoshate, eða ATP, sem er annað nafn yfir orkumiðil frumanna. Hver þeirra 100 trilljón fruma sem knýja okkur áfram, er uppfull af agnarsmáum frumeindakjarnakljúfum, sem kallaðir eru mitoccondia. Í þessi tilliti skiptir litlu hversu gott mataræðið er , ef enginn neisti er fyrir hendi, ekkert ATP, eða ekki nógu mikið ATP, þá merkir það minni styrk, úthald og orku til þess að lifa lífinu til fullnustu og án sjúkdóma.
Fullur Q-10 tankur!
Hér er gott að staldra við og velta fyrir sér hversu mörg kíló maður er á þessari stundu!
Þetta er einmitt ATP þyngd hvers og eins, hafi viðkomandi nægt magn Q-10 í líkamanum. Hjartað, sem er veigamesti efnaskiptavefur líkamans, þarf á allri þessari orkumiðlun að halda. Þegar við erum ung er mjög líklega nægt magn Q-10 í líkama okkar til að knýja mikilvægustu líffærin af fullum krafti og verja hann fyrir ágangi eyðandi sindurefna. Vandinn við að eldast er verri heilsa og lakari næringarupptaka og upp úr áttræðu framleiðir fólk vanalega 65% minna Q-10 en áður (munið að rýrnun um 75% getur leitt til dauða).
Ímyndið ykkur svo að aðeins helmingur líkamsþyngdar ykkar innihaldi ATP. Það þýðir mikla rýrnun á vöðvum og orku. Lítið magn Q-10 í líkamanum þýðir í raun að tankurinn er aldrei fullur. Afleiðingarnar eru meiri hvíldar- og svefnþörf, sem væri svo sem ekki það versta, ef ekki kæmi líka til minni hreyfigeta og auðvitað minni mótstaða gegn sjúkdómum.
Rannsóknir hafa sýnt að lágt hlutfall Q-10 er í blóði og vefjum þeirra sem þjást af hjarta- og æðasjúkdómum. Þarna eru því mikil lífsgæði í húfi, það að geta lifað lífinu til fulls eða alls ekki. Q-10 er með öðrum orðum beintengt þeim efnafræðilega eiginleika sem leysir úr læðingi orku úr frumum líkamans, sem skýrir líka af hverju Q-10 eykur svo mjög orku fólks, jafnvel þeirra sem þjást af síþreytu og vefjagigt (Myalgic Encephalopathy).
...og húðin
Allir vita að myndavélin bætir árum við andlit okkar og að ljósmyndin sýnir hrukkur betur en nokkuð annað. Allt bendir til að flestar hrukkur myndist af völdum UVA-geislanna sem eru allt í kringum okkur. UVA-geislar teljast til eyðandi sindurefna, sem Q-10 vinnur hvað öflugast gegn. Sex mánaða tilraun var framkvæmd á 20 sjálfboðaliðum sem komnir voru á efri ár. Þar voru áhrif notkunar Q-10 á húðina mæld með hárnákvæmum hætti, bæði áður en tilraunin hófst og eftir að henni var lokið. Notuð var sérstök myndavélatækni og húð hvers og eins skoðuð vandlega. Við lok tilraunarinnar var staðfest að hrukkurnar hefðu grynnst og gengið til baka sem nam að meðaltali um 27%, vel að merkja á aðeins hálfur ári.
Það er því ekki nóg með að það hafi margítrekað komið fram í rannsóknum að Q-10 verji húðina fyrir skemmdum af völdum oxunar að innan sem utan, heldur hefur einnig verið sýnt fram á að húðskemmdir og hrukkur gangi til baka í marktækum mæli við notkun þess.
Nokkrar merkar Q-10 rannsóknir
- Prófessor Folkers, vísindamaðurinn sem í upphafi greindi nákvæma efnafræðilega byggingu á Q-10, stjórnaði ásamt Dr. Per H. Langsjoen, fyrstu Q-10 lyfleysu rannsókninni á sjúklingum með veik hjörtu og stíflaðar æðar á árunum 1983 til 1985. Niðurstaða þeirra, sem birtist í hinu mikilsvirta riti National Academy of Science, greinir frá 19 sjúklingum sem lágu við dauðans dyr en fengu „óvenjulegan“ bata þegar magn Q-10 í líkama þeirra var aukið.
- Stærsta og umfangsmesta hjartarannsóknin var framkvæmd á 2.664 hjartasjúklingum á Ítalíu. Þegar magn Q-10 í líkama þeirra var aukið sýndu 82.4% góðan bata, þar af losnuðu 54% sjúklinganna við að minnsta kosti við þrjú einkennanna sem höfðu hrjáð þá.
- Í samantekt 39 tvíblindra rannsókna þar sem Q-10 var gefið við alvarlegum hjartasjúkdómum sýndi Dr. Stephan Sinatra fram á að Q-10 hafði komið að góðu gagni í 92.3% tilvika.
- Ein merkasta Q-10 rannsóknin sem gerð hefur verið var birt í riti Clinical Investigation árið 1983, en hún var framkvæmd á hjartasjúklingum sem ýmist neyttu Q-10 eða lyfleysu í 14 daga áður en þeir fóru í skurðaðgerð. Það er skemmst frá því að segja að þeir sem fengu Q-10 höfðu betra blóðflæði í aðgerðinni og meira ATP og bati þeirra tók skemmri tíma, eða 2 til 5 daga og var án vandræða. Sönnunargögnin eru sem sé allstaðar.
- Þetta er bara örlítil innsýn inn í allar þær Q-10 hjartarannsóknir sem framkvæmdar hafa verið.
Miklu meira en hjartað
Besta vörnin gegn oxun af völdum eyðandi sindurefna er að halda aftur af ellinni, á meðan efling ónæmiskerfisins er besta vörnin gegn sjúkdómum. Q-10 hefur bein áhrif á hvort tveggja.
Þetta skýrir einnig af hverju Q-10 vinnur gegn óeðlilegum frumuvexti, heila – og taugarýrnun, blóðsykursvandamálum, þ.e. sykursýki, lungnavandamálum, offitu, húðskemmdum, tannholdsvandmálum og höfuðverk. Það hefur jafnvel áhrif á frjósemi og þol og þrótt.
- Dr. Karl Folkers skráði að lágt magn af Q-10 væri í 83 sjúklingum sem þjáðust af óeðlilegum frumuvexti í brjóstum, lungum, blöðruhálskirtli, brisi, ristli, maga og fleiri líffærum.
- Dr. Sinatra segir þetta í The Coenzyme Q10 Phenomenon: „Q-10 er líklega gott fyrir heila- og taugafrumur, sem stafar af því að það kemur í veg fyrir eyðingu ATP (orkumiðlara frumanna) sem um leið hefur andoxandi áhrif.“
- Rannsókn sem gerð var á 80 sjúklingum með fyrstu einkenni skjálfta, stirðleika og ójafnvægis sýndu að aukið magn Q-10 hægði á einkennunum.
- Beta-frumur í brisi eru sérlega viðkvæmar fyrir eyðandi sindurefnum (oxun)og fólk sem þjáist af blóðsykursvandamálum hefur tilhneigingu til að mælast með lítið magn af Q-10.
- Í tvíblindri rannsókn á 62 sjúklingum dró aukið Q-10 magn í líkamanum strax úr insúlínmagni sem nam 10.6% og glúkósa í blóði um 19.6%.
- Prófessor Folker og Dr. Peter Langsjoen rannsökuðu sex sjúklinga sem þjáðust af ofvirku ónæmiskerfi. Þeir skrifuðu að aukið magn Q-10 fjölgaði T-frumunum og að dregið hefði úr einkennunum og ónæmiskerfið haldist stöðugt. Dr. Folkers og Dr. Langsjoen skráðu að niðurstöðurnar væru „hvetjandi og að sumu leyti sláandi“.
- Miðað við fyrirliggjandi rannsóknir og skrif vísindamanna í virtum rannsóknarritum virðist sem ekkert bætiefni hlaði betur frumur líkamans af orku og að fátt kæfi betur hin eyðandi sindurefni í fæðingu.
Fátt jafnast á við það að öðlast orkuna á ný.
Framúrskarandi Q-10 afurðir sem fást í Heilsuhúsinu:
Q-10 frá Heilsu (Guli miðinn): Gæðin eru gulltryggð því þetta Q-10 inniheldur hið nýja byltingarkennda ubiquinOL andoxunarefni beint frá Dr. Tatsumasa Mae sem vinnur á rannsóknarstofunni þar sem vítamínin frá Heilsu eru framleidd.
Higher Nature eru ávallt skrefi á undan, enda jafnan kölluð Rolls Royce bætiefnanna. Þeir gerja næstum öll sín vítamín, þar á meðal Q-10 og því eru gæði þess afbragðsgóð. Yfir 6000 læknar og heilsu- vörusérfræðingar um allan heim mæla með Higher Nature.
Solaray, Q-10 er ákaflega vandað og gott vítamín enda versla þeir alltaf við bestu hráefnisbirgjana og hafa framúrskarandi gæðaeftirlit. Q10 og fleiri vítamín og bætiefni frá Solaray hafa slegið rækilega í gegn á Íslandi.
Episilk Q-10 Serum er blanda hyaluronic sýrunnar og besta Q-10 sem völ er á. Þú finnur ekki betri húðsermi, sjá nánar umfjöllun um þessa ein
Lumessence Lift dagkremið inniheldur CoQ10 fitukorn (lípósóm) sem hefur áhrif á lögun frumnanna vegna andoxandi og verndandi eiginleika. Með reglulegri notkun dregst húðin meira og meira saman; fíngerðar línur minnka og verulega dregur úr djúpum hrukkum, sumir segja um allt að helming.
Samantekt: Guðrún Kristjánsdóttir
Senda á Facebook