Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Sea Buckthorn er talinn geyma fullkomnustu jurtaolíu jarðar fyrir húðina

  

 

Omega 7 í sviðsljósinu

Hafþyrnir (e. Sea Buckthorn) er planta sem er rík af andoxunarefnum og er enn ein ofurfæðujurtin sem Vesturlandabúar hafa uppgötvað á undanförnum árum. Talið er jurtin geymi ógrynni næringar, einkum fyrir endurnýjun húðar og slímhimna. Hún eflir einnig ónæmiskerfið og stuðlar að heilbrigði hjarta- og æðakerfis.

Sýnt hefur verið fram á það með rannsóknum á undanförnum árum að hafþyrnir (hippophae rhamnoides), sem vex í fjallahéruðum Kína, Tíbets, Mongólíu og Rússands, sé afar ríkuleg uppspretta C- og E-vítamína, sem og nauðsynlegrar fitusýru sem í dag er kölluð omega-7 fitusýran. Deilt er um hvort omega-7 fitusýran sé lífsnauðsynleg en vitað er að hún hefur heldur betur áhrif á það hvernig við eldumst. Hafþyrnirinn er skínandi fallega appelsínugulur að lit. Hann þrífst þar sem vetur er kaldur en sumrin snörp og heit. Þessi náttúruöfl móta einstaka, kraftmikla og hrjúfa jurt. Til eru þúsundir uppskrifta þar sem ber hafþyrnisins koma við sögu, hvort sem er til þess að bragðbæta mat eða bæta heilsuna. Þá eru lauf hennar notuð í te. Þar sem jurtin vex er einnig algengt að fólk noti hana til þess að verjast sólinni, vindinum, þurrki og og öðrum ágangi veðurs og umhverfis. Indverskir vísindamenn sem hafa gert rannsóknir með hafþyrninn hafa líka komist að því að hið ríkulega andoxunarefnainnihald hennar verji og endurnýi lifrina.


Sannað að viðhaldi fallegri húð
Eins og áður segir geyma hin gómsætu ber hafþyrnisins mikið af C- og E-vítamíni og fitusýrur en líka jurtasteróla, steinefni, karótenóíða og flavóníða. Yfirgripsmiklar vísindalegar rannsóknir hafa verið gerðar á hafþyrninum og þær hafa sýnt að hún hefur margskonar virkni, t.d. við að græða sár og endurbyggja slímhimnur og draga úr bólgum og einnig hefur verið sýnt fram á að hún sé frábær gegn þurrki í leggöngum, en fyrir það eitt er hún þegar orðin mjög þekkt. Umfram allt hafa vísindin þó sýnt fram á að hún er sérlega góð fyrir húðina. Hún frásogast fljótt og rakinn viðhelst lengi í húðinni þannig að hún helst mjúk og teygjanleg. Hún er því ekki síður góð fyrir ljósa og viðkvæma húð. Hafþyrnisolía hægir á öldrun húðar og heldur henni lengur hrukkulausri.

Í raun er farið að kalla hafþyrninn omega-7 fitusýruna. Það er vegna þess hve einstök, mikilvæg og nauðsynleg hún er og einnig vegna djúpnærandi eiginleika hennar og vegna þess að hún dregur úr þurrki, bólgum og - haldið ykkur nú fast - geti hugsanlega haft afturvirk áhrif á hrukkumyndun.
 
Náttúruleg og örugg fyrir alla
Eitt af því frábæra við Sea Buckthorn olíuna er að hún örugg fyrir alla, sama hversu viðkvæma húð fólk hefur. Þessi forna jurt er sannarlega ofurfæða því hún virkar í fullkomnu samræmi við líkamann og húðina. Hún hentar börnum ágætlega og rannsóknir hafa einnig sannað að hún dragi úr húðvandamálum á borð við psóríasis, exem, þurrk og siggróna og hrjúfa húð.


Öflugt andoxunarefni!
Það hefur lengi verið vitað að samvirkni E- vítamíns og karótínoíða skapar öflugt andoxunarefni. Safinn úr þessari jurt er því frábær, hvort sem innvortis eða útvortis, því hann afoxar og hægir á öldrun líkamans. Þá er þekkt að andoxunarefni minnka hættuna á ýmis konar krabbameinum og hjartasjúkdómum. Þegar oxun á sér stað glatar húðin meðal annars þéttleika sínum og tapar raka, en það eru fyrstu merkin um öldrun. Í kjölfar þess á húðin erfitt með að frásoga vökva og verjast ýmsum skaðlegum þáttum umhverfisins og þá hefst öldrunarferlið. Omega-7, eða hafþyrnirinn (Sea Buckthorn), kann að geyma lausnina á þessu vandamáli.

 

 Heimild: www.naturalnews.com

 

Senda á Facebook