Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Súkkulaði sælkeranna


 

Vivani er lífrænt verðlaunasúkkulaði

Súkkulaði sælkeranna

Hið lífræna Vivani gæðasúkkulaði sem fagnar sífellt vaxandi vinsældum kallar bókstaflega fram líkamlega nautn. Allt innihald Vivani er vandlega valið og vinnsluaðferð þess er óaðfinnanleg. Vivani hefur unnið til margra verðlauna í bragðprufum á vegum virtra sælkeratímarita.  Árið 2005 var 85% Vivani súkkulaðið mest selda gæðavaran í Þýskalandi, enda uppáhald allra sælkera.

Vivani, sem er þýsk gæðavara, hefur lífræna vottun og í því eru engin ýruefni. Fyrir utan að kalla fram allt það sem gæðasúkkulaði getur kallar fram hjá fólki (bragð, áhrif, tilfinningu og hið sjónræna) endurspegla gæði þess einnig allt það besta í löndunum og hjá bændunum þar sem innihald þess er ræktað. Allar kakótegundirnar í því eru afar vel valdar. Vanillan sem notuð er í Vivani er ekta Bourbon vanilla. Lesitín er vísvitandi útilokað. Engin erfðabreytt efni er heldur þar að finna og fullkomnu gæðaeftirliti er fylgt eftir.

Dökkt gæðasúkkulaði á borð við Vivani er líka bráðhollt. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á það. Í þýska tímaritinu Der Spigel kom nýlega fram að polyphenol í dökku súkkulaði verndar frumur líkamans og dregur úr streitu, beinþynningu og áhrifum slæma kólesterólsins.Gæðakakóbaunin inniheldur einnig mikla breidd lífvirkra efna, t.d. flavónóíðefnið catechins sem verndar hjartað og er jafnvel talið krabbameinshamlandi. Mikið af catechins fyrirfinnst einnig í grænu tei.

Galdurinn á bak við hollt súkkulaði er ekki síst sá að því meira sem vandað er til ræktunar og vinnslu kakóbaunarinnar því minni þörf er á sætuefnum. Gæða lífræn kakóbaun er nefnilega sæt í eðli sínu.

Nokkur dæmi um hugmyndaauðgi Vivani eru:

  •  Dökkt, mjúkt en fíngert með 85% kakóinnihaldi. Þetta er drottningin og uppáhald allra sælkera.

  •  Dökkt með chili, kakóinnihald 70 %.  Eldheitt súkkulaði með kakóbaunum úr regnskógum Ekvador í bland við lífræn chilifræ.

  • Cappuccino mjólkursúkkulaði með 42% kakóinnihaldi, lífrænni mjólk og kaffi. Hreinlega bráðnar í munni.

  • Dökkt (58%) og silkimjúkt með rjómakaramellu. Í senn fágað og freistandi.

HugmyndumVivani eru engin takmörk sett og fæst það með ýmsu sniði.
Sjá nánar á www.vivani.de
Birt í Heilsufréttum í september 2008.



 
Senda á Facebook