Natural Sun er ný og sérlega vönduð sólvarnarlína frá Aubrey Organics:
Svarar kalli samtímans um hreinleika og gæði
Aubrey Organics hefur svarað kalli samtímans og hafið framleiðslu á frábærlega vönduðum sólarvörnum undir nafninu Natural Sun sem í senn veita fulla vörn bæði gegn UVA / UVB (skaðlegum) geislum sólarinnar, eru vörn gegn tapi á andoxunarefnum húðarinnar og síðast en ekki síst verja gegn þurrkandi áhrifum náttúruaflanna.
En hvenær þarft þú þessar sólarvarnir? Svarið er einfalt, í hvert sinn sem þú ert í mikilli sól og það á ekki bara við um ströndina eða sund. Skemmdir í húð geta gerst hvenær sem er þegar húðin kemst í snertingu við hættulega UV hvort sem er A eða B geisla sólarinnar (en sjaldgæft er að sólavarnir verji bæði gegn UVA og UVB), eða þegar við erum í úti við að vinna í garðinum, í göngutúr með börnunum eða úti að skokka. Þar skiptir engu hvort það er snemma eða seint að deginum og jafnvel þótt að sólin kunni að fela sig á bak við skýin á heitum sumardegi.
Full vörn úr náttúrunni
Þegar talað erum fulla vörn gegn UVA/UVB er átt við að Natural Sun sólarvarnirnar búi til verndandi aukalag á húðina úr náttúrulegum efnum, sem eru zinc oxide og titanoum dioxide-steinefni. Þau beinlínis kasta þessum geislum frá húðinni. Eftir miklar rannsóknir veit Aubrey Organics að þetta tryggir þér öruggustu sólarvörnina.
Önnur hætta af annars okkar frábæru sól er hlutur hennar í myndum skaðlegra sindurefna (free radicals). Sindurefni geta verið krabbameinsvaldandi og eru einnig talin ábyrg fyrir eyðileggingu kollagens í húðinni, sem er einmitt það sem leiðir til hrukkumyndunnar og minni teygjanleika . Andoxunarefni eins og grænt te, granatepli og E-vítamín vernda húðina gegn alvarlegum húðskemmdum. Fleira sem getur farið afar illa með húðina annað er sólin, er vatn og vindur. Í fjölbreyttum jurtagrunni Natural Sun er plöntufita úr jojoba, shea- smjöri, Rosa Mosqueta og macadamínu hnetum ásamt lífrænt ræktuðu aloe vera sem er eitt af lykilefnum þessara sólarvarna og gefur raka og róar húðina.
Auðvitað eru Natural Sun sólarvarnirnar án parabena, litarefna og SLS (Sodium Lauryl sulfate) og geyma einungis náttúrulegar olíur sem virka frábærlega gegn sólarskemmdum á húð.
Bæði fyrir þá sem vilja verða brúnir án skaða eða enga sólbrúnku
Natural Sun vörulínan geymir fjórar tegundir sólarvarna með SPF 30 og tvær með SPF 15 sem í daglegu tali eru kallaðar varnir nr 15 og 30.
Sólarvarnirnar eru:
Natural Sun, Active Lifestyle, er fyrir þá sem ástunda virkan lífsstíl. Fæst bæði sem vörn nr 15 og 30. Vörnin geymir sérvalda blöndu fyrir útivistar -og Íþróttafólk með nærandi kukui, makademíu hnetuolíum og ilmar af náttúrulegum suðrænum ávexti. Vörn nr. 30 ver húðina afskaplega vel en sú nr. 15 hentar þeim vel sem vilja fá náttúrulegan brúnan húðlit án þess að skaða húðina.
Natural Sun, Unscented, Sensitive skin/Children er númer 30 og hentar mjög vel börnum og þeim sem eru með viðkvæma húð og vilja ekki ilm. Þessi vörn er bæði mýkjandi og mild og viðheldur eðlilegum raka húðarinnar með shea butter, jojoba olíu og aloe vera sem allt er lífrænt vottað.
Natural Sun, Green Tea, Antioxidant er einnig nr 30 og innheldur grænt te sem er sérlega andoxunarríkt, lífrænt vottuð shea butter, jojoba olíu og olíu úr sólblómafræjum. Allar þessar olíur halda húðinni mjúkri og stútfullri af raka.
Natural Sun, Saving Face, Uncented er nr 15 og sérstaklega gerð fyrir andlit. Er í senn frábært andlitskrem og verndar viðkvæma andlitshúðina gegn öldrunaráhrifum sólar og ekki síst fyrir mengun. Þessi andlitssólarvörn er án ilms, mýkjandi og viðheldur rakajafnvægi í húðinni með shea smjöri, jojoba olíu og aloe vera sem allt er lífrænt vottað.
Natural Sun, Sport stick eða sport stiftið er nr 30 og án ilms. Gott að hafa alltaf á sér til þess að redda málum þegar sólin er meiri en maður heldur, hvort sem er í sól, sjó eða snjó. Frábært til að vernda eyrun, nefið eða hársvörðinn.
Eftir sól
Í Natural Sun línunni er einnig að finna tvær tegundur After Sun, annars vegar After Sun, Face & Body Moisturizer sem er djúpur raki fyrir andlit og líkama og hins vegar Pure Aloe Vera, sem er hreint lífrænt vottað aloe vera eins og það gerist best. After Sun-ið inniheldur CoQ10 og granatepli til að fyrirbyggja öldrun. Það má bera á alla húðina og hentar sérlega vel þegar húðin er aum eftir mikla sól því það geymir einnig hið græðandi aloe vera, ásamt shea smjöri og lífræna Rosa Mosqueta® olíu. Og svo þarf vart að fjölyrða um að hið hreina aloe (Pure Aloe Vera) er róandi frá náttúrunnar hendi og mikill rakagjafi. Hentar einnig mjög vel þegar húðin er rauð og aum.
Nýju Natural Sun sólarvarnirnar henta þeim sem…
- ástunda virkan lífsstíl eða útvistarfólki sem hefur áhyggjur af langtíma áhrifum sólargeisla á húðina.
- eru sérlega viðkvæmir fyrir sólinni, eru viðkvæmir fyrir þurrki, brenna auðveldlega og eiga fjölskyldusögu um viðkvæmni fyrir sól.
- eru með viðkvæma húð og eru gjarnan með ofnæmi fyrir aukaefnum í sólarvörnum, finna fyrir pirring í húð vegna ofþornunar og eru alltaf að leita eftir rakavörnum.
- sem dá og dýrka sólbrúna litinn og njóta þess til að liggja í sólbaði en hafa áhyggjur af langtíma áhrifum hennar á húðina.
Sjá nánar á www.aubrey-organics.com
Senda á Facebook