Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Til höfuðs breytingaskeiðinu



Mexican Wild Yam og Femi Balance:

Til höfuðs breytingaskeiðinu

Það vakti heimsathygli þegar leikkonan Suzanne Somers gaf út bókina Ageless: The Naked Truth About Bioidentical Hormones. Þar fullyrðir hún að náttúrulegt prógesterón og estragon, búið til úr þykkni úr villtu Yam og soja, sem sé best að setja í plástra eða krem, sé eins og hannað af náttúrunnar hendi fyrir konur til að takast á við breytingaskeiðið. Hún kallar þessa samsetningu „æskuvökvann“ eða „the juice of life“. Soja í margskonar formi, - misgóðu að vísu - er daglegt brauð á mörgum heimilum en minna hefur farið fyrir Yam-inu, sem margir spyrja hvað sé í raun og veru?

Sumir telja að villt Yam sé systir sætu kartöflunnar en svo er ekki. Wild Yam vex villt í Norður-Ameríku, Mexíkó og í Asíu, þótt hún sé ræktuð víða annars staðar í dag. Fyrstu rituðu heimildirnar um Yam eru að finna í Ameríku frá árinu 1676. Í raun er þetta vínviður og ræturnar og stilkurinn hafa lengi verið notaðir við ýmsum kvillum. Frumbyggjar Norður-Ameríku notuðu villt Yam til að lina fæðingarhríðir, morgunógleði, magakrampa, astma, gigt, liðverki og magabólgur.
Kínverjar bjuggu til hressingarlyf úr villtu Yam til þess að hreinsa lifrina, örva meltinguna og mýkja vöðvanna. Þar hefur þessi jurt á sér orðið „chi“, sem þýðir „lífsorka“ og í indverskum alþýðulækningum var jurtin notuð gegn getuleysi og ófrjósemi.

Jafn útbreidd og getnaðarvarnarpillan
Samkvæmt Rosemary Gladstar virtum grasalækni sem skoðað hefur útbreiðslu Wild Mexican Yam segir hún það víða jafn mikið notað og getnaðarvarnarpilluna. Það sé vegna þess að flestir graslæknar mæla með þessari jurt til höfuðs breytingaskeiðinu, enda er hún sögð virka ákaflega vel. Hún komi jafnvægi á hormónabúskapinn, stilli tíðarhringinn og dragi úr fyrirtíðarspennu. Wild Mexican Yam hreinsar jafnframt lifrina, en það er eitt það mikilvægasta, því ætli maður sér að komast létt í gegn breytingaskeiðið er grundvallaratriði að hafa hreina lifur. Þetta kemur fram m.a. fram í bók Dr. Gillian McKeith, Þú ert það sem þú borðar.
 
Vitað er að Wild Yam inniheldur disogenin sem er sapogenin-efni og virkar líkt og kólesteról, prógesterón og DHEA sem er forveri testósteróns. Hér er mikilvægt að nefna að kólesteról er nauðsynlegt hormónabúskap líkamans. En þar sem Wild Mexican Yam er ekki sérlega bragðgott hafa margir brugðið á það ráð að setja það í plástra eða krem sem best er að bera á þunna hluta húðarinnar; þannig er það líka fljótvirkast. Það Mexican Wild Yam sem fæst í Heilsuhúsinu, frá heilsuvörufyrirtækinu Higher Nature, er í formi virks krems. Því er við að bæta að hinar sérlega vönduðu Higher Nature vörur, sem hafa það orð á sér vera „Rolls Royce bætiefnaheimsins“, fást aðeins í Heilsuhúsinu.

Hefur ekki „karlleg“ áhrif á konur
Þótt sumir læknar segi reginmun á tilbúnu prógesteróni og náttúrulegu eru margir læknar annarrar skoðunar. Dr. Neils Laurenson, fæðingarlæknir í New York og höfundur PMS: Premenstrual Syndrome and You, segir að sumar tegundir tilbúins prógesteróns hafi „karlleg“ áhrif á konur en náttúrulegt ekki. Ennfremur dragi það náttúrulega, sem finna má í Wild Mexican Yam, einnig úr vökvasöfnun í líkamanum. Dr. John Lee læknir og rithöfundur (höf: Restore your sex life) segir ástæðuna fyrir hliðarverkunum tilbúins prógesteróns einfaldlega þá að það sé ekki prógesterón. Hið náttúrulega prógesterón úr Wild Mexican Yam (sem snarminnkar í líkama kvenna með aldrinum) sé hins vegar nánast alveg eins og það sem líkaminn framleiðir.
Sagt er að Mexican Wild Yam dragi jafnvel algerlega úr líkamspirringi hjá konum á breytingaskeiðinu, sem eru mjög góðar fréttir.
Gaman er að geta þess að árleg Yam-hátíð er haldin í enda regntímabilsins í Ghana og Nígeríu og er afar vinsæll og virtur hátíðisdagur.


Femi Balance frá Solaray - strax í aðdraganda breytingaskeiðsins
Við viljum einnig vekja athygli á bætiefninu Femi Balance, því þegar tekist er á við breytingaskeiðið þarf að huga að mörgum þáttum . Femi Balance inniheldur jurtir sem draga m.a úr nætursvita, svefnvandamálum og þurrki. Hér er vandað til verka því í hverju hylki eru 465 mg af sérvöldum jurtum, en þær eru: 100 mg rauðsmári, salvía og granateplakjarnar, 50 mg yamsrót og hindberjablöð, 40 mg grikkjasmárafræ, grávalhnetubörkur og fennikufræ. Allt eru þetta afar kvenlegar jurtir sem gera miklum mun meira en að aðstoða við hliðarverkanir breytingaskeiðsins, því ýmsar góðar „aukaverkanir„ kunna að fylgja með.
Í hverju glasi af Femi Balance eru 100 hylki, en mælt er með 2 hylkjum á dag.


Helstu heimildir:
Þú ert það sem þú borðar. Höf Dr. Gillian McKeith. Þýð: Helgi Már Barðarson. Útg: Hólar. 2005.
The Naked Truth About Bioidentical Hormones. Höf: Suzanne Somers. Útg: Three Rivers Press. 2007.

http://abcnews.go.com/Health/story?id=2698729&page=  
http://vitamins.ultimatefatburner.com/wild-yam.html  
http://www.all-natural.com/wildyam.html 
http://www.healingfoodreference.com/wild_yam.html  



Senda á Facebook