Tilbúin efni í snyrtivörum til að forðast?
Varhugaverð aukefni í húðvörum
Ef þú villt nátturulegar snyrtivörur, þá verður þú að vera tilbúin að leita þær uppi. Læra að lesa á umbúðirnar, og neita að sætta þig við hálf nátturulegar hár og húð vörur. Hér að neðan er listi sem Aubrey organics, Guðrúnu Bergmann, Heilsuhúsið og Heilsa ehf hafa tekið saman um þau efni sem fólk ætti að forðast í snyrti og hárvörum. Við köllum þetta þau efni sem þú villt ekki hafa í snyrti- og hárvörum sem kallast náttúrulegar.
1. Methyl, Probyl, Butyl og Ethyl Paraben
Notað sem vörn gegn örveruvexti(rotvörn) í snyrtivörum og til að auka líftíma þeirra. Hefur valdið margskonar ofnæmisviðbrögðum og útbrotum. Rannsóknir hafa sýnt að þessi efni innihalda kvenhormónið estrógen í vægu magni, það getur frásogast í líkamann í gegnum húðina. Notað mikið þrátt fyrir að vitað sé að þau geti verið eitruð. Þessi efni geta truflað innkirtlastarfsemina, aukið líkur á krabbameini og ófrjósemi. Finnst í húðvörum.
2. Diethanolamine (DEA), Triethanolamine ( TEA)
Oft notað í snyrtivörur sem bindiefni til að innihaldið freyði betur. Þau geta valdið ofnæmisviðbrögðum, pirring í augum, þurrk í hári og húð. DEA og TEA eru samsettar ammoníakefnablöndur og geta myndað krabbameinsvaldandi sameindir þegar þær komast í snertingu við nítrat. Þessi efni eru eitruð ef þau frásogast til líkamans í lengri tíma.
3. Diazolidinyl Urea, Imidazolidinyl Urea
Þetta eru mikið notuð sem rotvarnarefni. Ameríska Húðlæknaakademían (The American Academy of Dermatology) hefur sagt að þessi efni séu talin aðal orsök snertiexems. Tvö þekkt nöfn sem innihalda þessi efni eru Germall II og Germall 115. Hvorugt þessarra Germall efna eru góðir sveppaeyðar, þau þurfa að vera sameinaðir með öðrum rotvarnarefnum til að virka. Bæði þessi efni losa formalín, sem getur verið eitrað.
4. Sodium Lauryl / Laureth sulfate
Ódýrt, hart þvottaefni notað í hársápur og sápulegi, vegna hreinsandi eiginleika og vegna þess hve vel þau freyða. Oftast unnið úr bensíni. Oft falið í snyrtivörum sem eru sagðar náttúrlegar, með orðasambandinu „kemur úr kókoshnetu“. Það getur valdið pirring í augum, hrúður í hársverði sem líkist flösu, útbrot á húð og öðrum ofnæmis viðbrögðum.
5. Petrolatum
Einnig þekkt sem petroleum jelly (vaselín), þessi steinefnaríka olía er notuð til að fá mjúka áferð á snyrtivörurnar. Það hefur ekkert næringargildi fyrir húðina, og getur haft neikvæð áhrif á eiginleika húðarinnar til að viðhalda eðlilegum raka sínum. Falskur raki vaselínsins liggur á húðinni sem veldur því að húðin hættir að framleiða sinn eigin náttúrulega raka og verður þurr og sprungin. Þannig að í raun framkallar vaselín þau einkenni sem það á að bæta. Framleiðendur nota þetta vegna þess hversu ódýrt hráefni það er.
6. Propylene Glycol / PEG /Polyethylene glycol / polypropylene glycol
Þetta er grænmetis glýseról blandað grjóna alkahóli, sem hvort tveggja er náttúrulegt það er gott. Venjulega er það blandað tilbúinni jarðolíu og notað sem raki í snyrtivörum. Það er þekkt fyrir að valda ofnæmisviðbrögðum, útbrotum og exemi. Talið geta skaðað frjósemi.
7. PVP/VA Copolymer
Efni unnið úr petrolíum notað í hársprey, hármótunarvörur og aðrar snyrtivörur. Það er talið hættulegt ef andað að sér þó að í litlu magni sé. Það getur skemmt lungun í fólki sérstaklega fólki sem er viðkvæmt fyrir.
8. Stearalkonium Chloride
Að hluta amoníak efnasamband notað í hárnæringar og krem. Þróað af verksmiðjuiðnaðinum sem mýkingarefni fyrir textílefni. Þetta er ódýrari og einfaldari blanda í hárnæringu og krem. Æskilegri eru prótein og jurtir sem innihaldsefni í hár- og snyrtivörum þær eru mikilvægar hárinu til viðhalds náttúrulegri mýkt og glansa. Þetta efni veldur ofnæmisviðbrögðum. Eitrað.
9. Synthetic Colors
Notað til að gera snyrtivörur „fallegri“ á litinn. Tilbúin litarefni, ásamt tilbúnum háralitum, ætti að forðast algjörlega. Það sem er merkt sem FD&C eða D&C og á eftir fylgir litur og númer. Dæmi: FD&C Red No. 6 / D&C Green No. 6. Margir tilbúnir litir hafa krabbameinsvaldandi áhrif. Ef snyrtivara inniheldur tilbúin litarefni, þá á ekki að nota þau.
10. Synthetic Fragrances
Tilbúin ilmefni sem notuð eru í snyrtivörum, geta innihaldið allt að 200 efni. Það er engin leið að vita hvaða hráefni er um að ræða, því að á miðanum stendur aðeins „fragrances“. Hluti af óþægindunum vegna þessara efna er höfuðverkur, svimi, útbrot, litabreytingar á húð, hósti, ógleði, húðpirringur- og miklu fleira. Ekki kaupa snyrtivörur sem segja „fragrances“ á innihaldslýsingum. Þau fyrirtæki sem nota ekta ilmkjarnaolíur setja það alltaf í innihaldslýsingar, vegna þess hversu dýrt hráefni hreinar ilmkjarnaolíur eru.
11. PEG og –eth/ Poyethylene/polyethylene glycol/oxynol
Mjög eitruð aðskotarefni sem hækka sýrustig líkamans. Geta innihaldið ¼ -dioxane sem er talið geta valdið krabbameini, vera hormóna raskandi og truflað innkirtlastarfsemi.
12. Methylchloroisothiazolinone/ Methylisothiazoline
Þessi efni tengjast ofnæmi og vandamálum í taugakerfi.
13. Triclosan /Triclocarban
Þessi efni geta ögrað starfsemi skjaldkirtils.
14. DMDM hydantoin/ imidanzolidinyl urea
Eitruð aðskotaefni sem hækka sýrustig líkamans, finnst í svitaeyði, sjampó, handáburði og sumum maskörum.
15. Formaldehyde
Talið vera mjög skaðlegt, er krabbameinsvaldandi og getur valdið taugaskaða, finnst í naglalökkum og fleiri húðvörum.
Linkur á Natural News síðu http://www.naturalnews.com/024296_shampoo_health_organics.html
http://www.purezing.com/living/toxins/living_toxins_dangerousingredients.html
http://www.medicalnewstoday.com/articles/17382.php
http://bestinbeauty.com/top-10-toxins.aspx
Senda á Facebook