Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Tvær nýjar tímamótarannsóknir

 

 

Rauðrófusafi eykur þrótt keppnisíþróttamanna og skerpir heila eldra fólks
-og lækkar að auki blóðþrýsting

Mishollir drykkir hafa verið á markaðnum sem lofa betri frammistöðu og hraðari endurnýjun þróttar eftir stífar æfingar. Þetta eru allt frá súkkulaði mjólkurpróteindrykkjum, til safa og súperdrykkja, með allskyns viðbættum aukaefnum. En hafið þið heyrt hvað hreinn rauðrófusafi hefur fram að færa?

Það hefur verið vitað í um tvö ár að rauðrófusafinn lækkar blóðþrýsting á innan við klukkustund eftir að hans er neytt. Þetta kom fram í víðtækri breskri rannsókn (sjá nánar á http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/7228420.stm ). Er það rakið til þess mikla og góða magns nítrats sem rauðrófusafi hefur að geyma. Samkvæmt nýlegri rannsókn sem birtist í riti Medicine and Science in Sport and Exercise kom fram að rauðrófusafinn hjálpar einnig keppnishjólreiðamönnum að skera niður keppnistíma. Þetta kom í fram í rannsókn meðal Tour de France hjólreiðamanna í keppninni sem fór fram nú í sumar.
Gerðar voru tvær prófanir á níu karlkyns keppnismönnum. Fyrir hvort próf drukku íþróttamennirnir hálfan lítra af rauðrófusafa. Í fyrri tilrauninni fengu þeir allir hreinan rauðrófusafa en í síðari hafði -án vitundar þeirra- nítratið í rauðrófusafanum verið fjarlægt.

Og niðurstöðurnar? Ekki flóknar:
Þegar hjólreiðamennirnir drukku hinn hreina og náttúrulega rauðrófusafa með nítrati höfðu þeir mun meiri kraft til að takast á við sömu vegalengd en þegar þeir drukku safann sem búið var að fjarlægja nítratið úr. Þar munaði 11 sekúndum á fjögurra kílómetra leið og 45 sekúndum á 16.1 kílómetra leið. Þetta virðist kannski ekki mikið en hafið í huga að í keppni eins og Tour de France skilja oft ekki nema nokkrar sekúndur á milli þeirra efstu, jafnvel þótt þeir hafi hjólað í meira en 90 klukkustundir.

Þá kom nýlega fram í greininni Nitric Oxide: Biology and Chemistry, að rauðrófusafi hefur einnig góð áhrif á heilann. Rannsóknin sem segir frá þar sýndi aukið súrefnisflæði til heilans sem dregur úr rýrnun hans og þar með minnkandi vitsmunum. Þetta stafar allt að sama efninu, þ.e. hinu mikla magni nítrats sem er að finna í rauðrófusafanum en þegar er vitað að gott blóðflæði til heilans heldur honum skörpum.

Þessi rannsókn, sem framkvæmd var á Wake Forest University’s Translations Science Center, var gerð á 14 sjötugum einstaklingum og stóð yfir í fjóra daga. Þeim var skipt upp í tvo hópa og neyttu þeir ýmist fæðu með miklu nítrati í (rauðrófa í bland við nítratríkt laufgrænmeti) og hins vegar “venjulegs” fæðis. Hver þátttakandi var rannsakaður, bæði fyrir og eftir, með tilliti til nítrat magns í líkamanum og blóðflæðis til heilans. Skipti voru líka höfð á mataræði hópanna og sömu rannsóknir framkvæmdar. Niðurstöður sýndu undireins aukið blóðflæði til framheila þegar nítratríks fæðis var neytt. Höfundar rannsóknarinnar drógu þá ályktun að neysla á nítratríku fæði bætir súrefnisflæði til heilans og vinnur að öllum líkindum gegn öldrum hans.


Sjá nánar á:
http://shine.yahoo.com/channel/health/is-beetroot-juice-the-next-gatorade-2509482  
http://perfecthealthjuice.com/beetroot-juice-could-be-key-to-alzheimers-disease-prevention/  



Senda á Facebook