Úrval lífrænt vottaðra fræja til mat- og kryddjurtaræktunnar
Loksins í Heilsuhúsinu!
Úrval lífrænt vottaðra fræja til mat- og kryddjurtaræktunnar
Nú getum við glatt viðskiptavini Heilsuhússins með því að loks eru komin í búðirnar okkar margskonar lífrænt ræktuð mat- og kryddjurtarfræ frá Bogacfarm, sem höndla einungis með lífrænt ræktaðar afurðir. Um er að ræða spennandi efni í allskyns mat- og kryddjurtir sem Íslendingar þekkja oft í allskyns útgáfum.
Fræin fást í Heilsuhúsinu í Kringlunni, Lágmúla, Smáratorgi, Laugavegi og á Akureyri en þetta eru m.a. egypskar rauðrófur, gulrætur upprunnar frá Nantes í Frakklandi, Fennel frá Flórens, hvítur laukur Rijnsburgur, langur rauður chilipipar, stórt sellrí frá Utah, tvenns konar svokölluð butterhead salatblaðafræ, Lollo Rosso salat, venjulegt sem og villt klettsalat og margt annað. Kryddjurtafræin sem Heilsuhúsið selur eru meðal annars dill, kóríander, tímjan, basilika, blaðselja og síðast ekki síst ítölsk steinselja.
Eins og kom fram í viðtali í Heilsupóstinum í mars, við Heiði Björnsdóttur -sem kennir ræktun matjurta í Heilsuhúsinu- er hægur vandi að rækta allt á milli himins og jarðar hér á landi.
Sjá nánari upplýsingar um okkar lífrænt vottuðu matjurtarfræ á http://www.bogachfarm.ie/
Senda á Facebook