Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Vorhreingerning í hæsta gæðaflokki


Herbal SpringClean frá Higher Nature

Vorhreingerning í hæsta gæðaflokki

Eina ferðina enn er runnin upp tíma vorhreingerninga, hvort sem er á sál, líkama eða á umhverfi okkar. Fátt er betra fyrir þreytt líkamsástand og orkuleysi en að neyta góðra garðjurta til þess að styðja við lifrina, nýrun og blóðið.
Herbal SpringClean jurtablandan frá Higher Nature, sem eingöngu fæst í Heilsuhúsinu, er náttúruleg og fullkomlega lífræn en hún hreinsar meðal annars húðina, þvagrásina, smáþarmana og er sérlega öflug gegn blöðrubólgu, þvagfærasýkingum og húðvandamálum, sem eru einmitt hin ytri ummerki óhreinnar lifur, vanvirka nýra og óhreins blóðs.
Blandan inniheldur túnfífilsrót- og króklöppu sem hafa verið notaðar til vorhreingerninga frá ómunatíð. Kaffífilsrót, steinselja og sætt cicely, hvítlaukur og morgunfrú eru líka ómissandi í þessu samhengi. Blandan hreinlega ýtir okkur út í vorið eða hvenær sem okkur langar að hreinsa eða breyta til í lífi okkar.


Nánar um hverja jurt:
Dandelion root / Túnfífilsrót, innihald 100 mg
Rætur fífilsins voru áður fyrr víða notaðar sem “lifrarseyði” þar sem menn höfðu áttað sig á að þær styrkja starfsemi lifrarinnar. Var því fólki með vandamál eins og hægðatregðu, höfuðverk, húðvandamál, þreytu og þvagsýrugigt bent á að borða fíflarætur. Margar læknisfræðilegar rannsóknir hafa staðfest getu jurtarinnar til að losa um flæði efna í lifur. Hún eflir gallflæði sem eflir starfsemi lifrar og gallblöðru. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að jurtin getur losað þvagsýrur úr blóði og læknað blóðleysi.
 
Burdock root / Króklappa, innihald 100 mg
Er ein algengasta afeitrunarjurtin i vestrænum og kínverskum lækningum. Rótin dregur úr bólgum og bakteríum, örvar gallframleiðslu og er sögð einna best til þess fallin að losa líkamann við þunga málma.

Marigold petal / krónublöð Morgunfrúar, innihald 60 mg
Morgunfrú er mjög fjölhæf jurt sem auk þess að hindra sveppa- og bakteríuvöxt, er húðbætandi og sérlega góð við húðþurrki.

Chicory root / Kaffifílsrót, innihald 60 mg
Kaffífilsrót er mild beisk jurt sem er í senn góð fyrir meltinguna og lifrina. Á margan hátt svipar henni til túnfífilsrótar. Hún er líka góð gegn þvagsýrugigt og hefur milda laxerandi eiginleika. Vegna mildi en samt góðrar virkni er hún oft gefin börnum.

Parsley leaf / Steinseljublöð, innihald 60mg
Steinseljublöð eru svo næringarrík að nota má þau ein og sér sem bætiefni. Laufin virka sérlega vel á stirða liði og hreinsa nýrun. Þau draga úr vindgangi, virka gegn sulli og þykja góð við gigt. Þá draga þau einnig úr fyrirtíðaspennu.

Garlic bulb / hvítlauksgeirar, innihald 60 mg
Hvítlaukur hefur verið notaður til lækninga í a.m.k. 3500 ár og var skilgreindur sem lyf af Hippókratesi, föður læknisfræðinnar. Hvítlaukur styrkir ónæmiskerfið og inniheldur efnið allín sem breytist í allisín fyrir tilstuðlan ensímsins allínasa þegar hvítlauks er neytt. Allisín hefur sýkladrepandi áhrif og er því hvítlaukur náttúrulegt sýklalyf.

Sweet cicely leaf / Sæt cicely lauf, innihald 60 mg
Sæt cicely lauf svipar til anísjurtarinnar og eru þau í senn hressandi, slakandi og slímlosandi. Jurtin er einnig afar góð gegn vindgangi og er stundum notuð í hóstamixtúrur.

Þú þarft nauðsynlega að hreinsa líkamann þegar þú:
  • Reykir
  • Drekkur meira en einn svartan tebolla, kaffi eða koffíndrykk daglega
  • Færð þér í glas af og til
  • Borðar reglulega skyndibita, djúpsteiktan eða unninn mat
  • Færð hausverk eða aðra verki í líkamann reglulega
  • Færð flensu eða sýkingar reglulega
  • Ert alltaf þreytt/ur
  • Þjáist af fyrirtíðaspennu
  • Ert með bauga

Líka þegar þú ert:

  • Of þung/ur
  • Með fæðuóþol
  • harðlífi
  • Of föl/ur og þreytuleg/ur
  • Með hvíta tungu
  • Með ómögulegt hár
Þó að þú jánkir ekki nema þremur af þessum einkennum er mjög líklegt að þú þurfir að hreinsa líkamann.

Neytið á bilinu 1 – 3 hylkja , allt að þrisvar á dag með vatni, safa eða tei. Ekki ráðlagt þunguðum konum.
 
Heimildir m.a.
Encyclopedia of Medicinal Plants. Höf: Andre Chevallier. 1996. Dorling Kinderesly Limitied, London. DK publishing Inc.



Senda á Facebook