Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Weleda fagnar 90 ára afmæli

 

 

Weleda fagnar 90 ára afmæli:

Fyrsta fyrirtækið í heiminum til að framleiða og selja vörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum

Weleda merkið rekur uppruna sinn aftur til ársins 1921, til hreyfingar sem byggir á lífsspeki dr. Rudolfs Steiner. Hann þróaði, ásamt dr. Ita Wegman og teymi vísindamanna og lækna, heilsufræði sem hann byggði á þeirri kenningu að líkaminn búi yfir gífurlegri færni til að lækna sig sjálfur, en þurfi stundum utanaðkomandi aðstoð. Teymið hóf að rækta upp lífrænan garð með þeim jurtum sem til þurfti. Weleda þróaði vörur sínar á tilraunastofu án þess að nota nokkur tilbúin efni eða rotvarnarefni og er nú orðið að 90 ára gömlu heilsuvörufyrirtæki með lífræna vinnslu að leiðarljósi - geri aðrir betur. Fáir vita að nafnið Weleda er til heiðurs þeirri ævafornu hefð keltneskra kvenna að nýta lækningajurtir náttúrunnar til að annast og lækna sjúka. Þessar djúpvitru konur kölluðust Veledur, en samkvæmt heimildum var síðasta konan sem bar nafnið Veleda læknir og völva sem bjó í Þýskalandi á fyrstu öld e. Kr. Pílagrímar komu hvaðanæva að til af til að fá bót meina sinna og þiggja ráð frá henni.

Valdís Haraldsdóttir hjá Weleda þekkir sögu Weleda betur en nokkur annar hér á landi. Hvernig finnst þér þróunin hafa verið? „Weleda er á margan hátt mjög merkilegt fyrirtæki,“ segir Valdís. „Þetta er nefnilega fyrsta fyrirtækið í heiminum sem hóf að framleiða og selja vörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum. Það sem gerir Weleda vörurnar svona einstakar er framleiðsluferlið, en fyrirtækið leggur höfuðáherslu á að kraftur jurtanna sé sem mestur og bestur þegar jurtirnar eru tíndar af ökrunum, eða að þær séu það sem við köllum bíódýnamískar. Það er til að tryggja að sérhver vara sem framleidd er þjóni þeim tilgangi að hjálpa líkamanum sem best. Það er líka einkennandi fyrir Weleda að stjórnendur fyrirtækisins hafa aldrei hvikað frá þeirri hugmyndafræði sem dr. Rudolf Steiner lagði upp með og er í aðalatriðum að auðsýna bæði manni og náttúru virðingu og ást og umgangast náttúruna á ábyrgan hátt. Það er t.d. gaman að segja frá því að birkisafinn frá Weleda, sem margir kannast við, var fyrst framleiddur árið 1924 og hefur lítið ef nokkuð breyst síðan þá, það sama má segja um arnicu húðolíuna - hún kom á markað árið1926 og hefur haldist óbreytt síðan.

Ætlið þið að gera eitthvað sérstak í tilefni tímamótanna?
„Weleda vörurnar hafa verið til sölu á Íslandi í áratugi en óhætt er að segja að á síðastliðnum árum hafi salan aukist hratt vegna vitundarvakningar meðal almennings um innihaldsefni í snyrtivörum; þá skiptir gott orðspor vörunnar líka miklu máli. Við fáum gjarnan símtöl og póst á netinu frá fólki sem vill segja okkur frá því hvernig Weleda vörurnar hafa hjálpað þeim.“
Valdís segir að í tilefni tímamótanna hafi þau gefið út tímarit á íslensku, Weleda Magazine, sem er 36 bls. blað með áhugaverðum viðtölum við fólk sem vinnur við ræktun jurtanna og margs konar fræðslu um það sem gerst hefur hjá Weleda á s.l. 90 árum. „Við dreifum blaðinu frítt og hægt er að nálgast það t.d. í Heilsuhúsinu. Við settum líka í sölu tösku sem inniheldur sjö vinsælar Weleda vörur, þannig gefst fólki tækifæri á að kynnast vörunum. Og bráðlega munum við gefa út nýjan Weleda vörubækling á íslensku með fallegum myndum og fróðlegum og ítarlegum upplýsingum um jurtirnar sem einkenna vörulínurnar okkar.“
Weleda vörulínan býður upp á andlitsvörur fyrir konur og karlmenn, barna og meðgönguvörur, húðolíur, sturtusápur, baðmjólk og allt annað sem við þurfum til almennrar húðumhirðu. Þess má geta að Weleda vörurnar hafa hlotið fjöldann allan af virtum viðurkenningum á s.l. árum. Barnavörulínan var t.d. valin „Bestu barnavörurnar“ af Life Magazine í Englandi og tímaritið Natural Health Magazine valdi Weleda vörurnar sem bestu heilsuvörurnar árið 2010. Weleda vörurnar eru vottaðar samkvæmt NaTrue-staðlinum.
Sjá nánari upplýsingar inn á www.weleda.is .


Senda á Facebook