Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Sagan

Heilsuhúsið hóf starfsemi í desember 1979 að Skólavörðustíg 1a, þar sem verslunin Pfaff hafði verið áður. Þar var verslunin starfrækt til júnímánaðar 1993, en þá flutti hún yfir götuna á Skólavörðustíg 4 og í september 2001 flytur verslunin á Skólavörðustíg 12. Í apríl 2009 flutti versluninn af Skólavörðustíg 12 niður á laugaveg 20b þar sem hún er staðsett núna. Í millitíðinni opnaði ný verslun í Kringlunni þegar sú verslunarmiðstöð hóf starfsemi sína 13. ágúst 1987 og hefur verið starfrækt þar síðan. 21. mars. 1998 fer síðan þriðja verslunin af stað í Smáranum, við Smártorg 1. Heilsuhúsið á Selfossi er síðan opnað sumarið 2005 og Heilsuhúsið opnaði fimmtu versluninna í Lágmúla 5 í júní 2006. Heilsuhúsið á Akureyrir opnaði síðan í september 2008 á Glerártorgi.

Fyrir hartnær aldarfjórðungi, þegar starfsemi Heilsuhússins hefst, er almennt viðhorf til slíkrar verslunar nokkuð frábrugðið því sem er í dag. Þá fannst mörgum þetta vera verslun fyrir sérvitringa og jafnvel nafnið þótti fyndið. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag koma viðskiptavinir Heilsuhússins alls staðar að úr þjóðlífinu, enda hefur áhugi fólks á því að gera eitthvað sjálft fyrir eigið heilbrigði og vellíðan aukist jafnt og þétt. Það sem okkur finnst sérstaklega ánægjulegt og staðfestir enn frekar að við erum á réttri braut, er að stöðgt fleira fólk kemur í Heilsuhúsið eftir bætiefnum eða náttúrumeðulum að læknisráði.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !