Klúbburinn

Heilsuhúsið hefur til fjölda ára staðið fyrir vildarklúbbnum Íbúar Heilsuhússins. Íbúar Heilsuhússins fá mánaðarlega fréttabréfið Heilsupóstinn sent til sín rafrænt með margs konar fróðleik og um leið gefst þeim kostur á sérstökum tilboðum sem aðeins eru fyrir Íbúa Heilsuhússins. Kappkostað er að hafa þennan afslátt ríflegan og bjóða aðeins úrvalsvörur. Á þessu ári verður ýmislegt spennandi á dagskrá fyrir Íbúa Heilsuhússins.
Verslun eins og Heilsuhúsið sem leggur mikla áherslu á ráðgjöf er óhjákvæmilega oft í nokkuð nánum tengslum við viðskiptavini sína. Fólk leitar í Heilsuhúsið til að fá uppskriftir, það kemur til að fá ráð um matreiðslu á ákveðnum matvörum og ekki síst leggur það leið sína til okkar til að leita ráða um mataræði og bætiefni þegar kvillar og krankleikar steðja að. Meginástæðan fyrir því að við settum vildarklúbbinn Íbúar Heilsuhússins á laggirnar var að við vildum halda þessu nána sambandi og jafnvel styrkja það. Með Heilsupóstinum getum við miðlað fróðleik um heilnæman lífsstíl til þeirra sem æskja þess að fá slíkar upplýsingar. Íbúar Heilsuhússins er vildarklúbbur fyrir fólk sem hugar að heilsunni og hefur ánægju af að matreiða hollan og góðan mat. Við erum sennilega flest sammála því að þessi lífssýn hefur aldrei átt meiru fylgi að fagna en einmitt nú.
Með góðum kveðjum
Jóhanna Kristjánsdóttir
Senda á Facebook