Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Hægðatregða

Tregar hægðir eiga í flestum tilfellum rætur að rekja til ónógra trefja og of lítils vökva í fæðunni. Aðrir þættir sem geta orsakað tregar hægðir eru m.a. skortur á hreyfingu, hár aldur, magasjúkdómar og lélegt mataræði. Einnig geta tregar hægðir verið aukaverkanir af völdum lyfja. Þar sem tregar hægðir geta valdið heilsutjóni sé ekkert að gert, er betra að finna lausn á þessum óþægindum áður en til langvarandi harðlífis kemur.

Breytt mataræði og hreyfing
Fyrst af öllu er nauðsynlegt að auka neyslu trefja og vökva. Ávextir, grænmeti, heil korn og grjón, þ.e. korn með hýði og vörur úr þeim eru trefjaríkar fæðutegundir sem æskilegt er að borða oftar og meira af. Mjög gott er að auka neyslu á fæðutegundum eins og heilum höfrum, hafragrjónum, hýðishrísgrjónum, gulrótum, baunum, byggi, eplum, apríkósum, fíkjum og alveg sérstaklega sveskjum. Sveskjusafi er einstaklega gagnlegur, hann er jafnvel fáanlegur blandaður jurtum sem auka virkni hans eins og t.d. Digestive safinn frá Biotta. Aukin hreyfing er einnig æskileg, því líkamleg áreynsla eykur hreyfingu úrgangs gegnum þarmana.

Bætiefni
Psyllium trefjar hafa sérstaka kosti. Þær hafa m.a. þann eiginleika að drekka í sig meiri vökva en flestar aðrar trefjar og margfaldast að ummáli. Því er nauðsynlegt að drekka vel þegar psyllium trefjar eru teknar inn, hvort sem þær eru teknar í hylkjum eða dufti, a.m.k. stórt vatnsglas. Annar kostur þeirra er þær innihalda 10-30% jurtaslím. Hægðalosandi eiginleikar þeirra helgast einmitt af því að þær breytast í slímkenndan massa sem heldur hægðunum mjúkum og hraðar þeim gegnum meltingarfærin.


Colon Forte samanstendur af Psyllium trefjum og Acidophilus gerlum auk annarra heilnæmra meltingarfæragerla og FOS sem nærir þessa gerla. Þessir gerlar viðhalda eðlilegri og heilbrigðri starfsemi meltingarfæranna, ekki aðeins með því að byggja upp nauðsynlegan gerlagróður í meltingarfærunum, heldur líka með því að vinna á óæskilegum gerlum. Colon Forte stuðlar því bæði að auknum hraða fæðunnar í gegnum meltingarfærin og betri tæmingu ristils auk þess að byggja upp heilbrigðan gerlagróður í meltinarfærunum, sem fyrir sitt leyti er undirstöðuatriði skilvirkrar starfsemi þeirra.

Digestive safinn frá Biotta er ekki bætiefni út af fyrir sig heldur bragðgóður sveskjusafi úr lífrænni ræktun sem blandaður er jurtum til að auka losandi virkni hans á meltingarfærin.

Glucomannan eru trefjar unnar úr rótarhnýði jurtar sem gengur m.a. undir nöfnunum djöflatunga og vúdúlilja, latneska: Amorphophallus konjac. Trefjar þessarar jurtar stuðla að jöfnun blóðsykurs og viðhalda tilfinningu mettunar. Glucomannan hefur þann kost fram yfir aðrar trefjar, að miklu minna magn þarf af þesssum trefjum en öðrum, þar sem þær geta 17faldast að umfangi þegar þær blandast vökva. Trefjar jurtarinnar verða slím- eða hlaupkenndar þegar þær blandast vökva, þær draga í sig eiturefni og hreinsa þau úr meltingarfærum jafnframt því að stuðla að betri tæmingu þarma. Þessar trefjar binda ekki sink og járn eins og t.d. trefjar hveitiklíðs gera. Rannsóknir benda einnig til að glucomannan lækki slæmt kólesteról í blóði en stuðli að aukningu góða kólesterólsins.

Aloe vera safi hefur milt örvandi áhrif á losun úrgangsefna, með því m.a. að mýkja lítið eitt hægðir. Hann hefur jafnframt bætandi og hreinsandi áhrif á meltingarfærin.


Upplýsingar þessar eru samansafn fróðleiks um náttúrulegar lækningar. Þeim er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !