Aceto Balsamico
Balsam edik frá Monari Federzoni
Fyrsta ritaða heimildin um Balsam edik er frá árinu 1046, þegar Bonifacio di Canossa (faðir Matildu, greifaynjunnar miklu) færði keisaranum Henri III tunnu af Balsam ediki í krýningargjöf. Tæpum 800 árum síðar, þegar Francesco IV af Este, hertogi af Modena færði prinsinum af Metternick gjöf árið 1815, var verðmætasta gjöfin úr hertogadæminu enn hin sama, Aceto Balsamico eða Balsam edik. Vitneskjan um þennan verðmæta vökva er ekki lengur bundin við dalina umhverfis Modena, en upphaf hans er hulið móðu tímans. Vinnslan á djúpar rætur í menningu og hefðum héraðsins. Tvær tegundir af þrúgum eru notaðar, Trebbiano di Spagna og Lambrusco. Þær eru pressaðar og safinn seyddur í stórum koparkötlum þar til eftir stendur dökkur, karamellulitaður, þykkur, ljúfffengur, sætur vökvi. Þessum vökva ìmustî er blandað saman við vínedik og látinn lagerst í þar til gerðum ámum úr eik, aski, kastaníu-, kirsuberja- og mórberjatrjám og stundum eini og linditrjám. Viðurinn stuðlar að hinu sérstæða bragði Balsam ediks. Aldur er ekki tilgreindur á flöskunum, því Balsam edik er samsett úr mörgum árgöngum. Green label (græni miðinn) er vinsælasta Balsam edikið, enda afbragðs edik á hagstæðu verði. Að jafnaði hefur það lagerast í um 5 ár. Gold label (gyllti miðinn) hefur að jafnaði lagerast í um 10 ár og inniheldur hærra hlutfall af musti. Það er því sætara og bragðmeira. Gold label RISERVA er haft á ámum í um 25 ár og inniheldur mest af musti. Það hefur því fyllsta og þroskaðasta bragðið. Höfugur ilmur, milt og þægilegt bragð hrífa hugann og fylla vit í samspili tóna, skynjunar og hrifningar eitt andartak. Og leyndarmál framleiðslunnar varðveitist kynslóð fram af kynslóð, líkt og hjá virtustu vínframleiðendum.
Balsamedik Pavarottis Bellei er gamalt fjöldskyldufyrirtæki í Modena sem framleitt hefur balsamedik frá því á nítjándu öld. Fyrirtækið er byggt á starfsemi forfeðranna, en Bellei fjöldskyldan hefur verið í matvælaframleiðslu síðan á 17. öld. Bellei býður upp á fjölbreytt úrval balsamediks, allt frá ársgömlu til 25 ára og eldra, einnig úr lífrænni ræktun. Bellei er opinber birgi veitingahússins Club Europa 92 í Modena, sem er í eigu Pavarottis. Heilsuhúsið er með úrval af balsamediki frá Bellei, frá 3ja ára til 12 ára gömlu, bæði úr hefðbundinni og lífrænni ræktun.
Hvenær og hvernig er Balsam edik notað Einföld og einkar ljúffeng salatdressing er Balsam edik blandað jómfrúar (Extra Virgin) ólífuolíu, krydduð með góðu kryddsalti, t.d. Herbamare og svörtum pipar úr kvörn. Balsam edikið stendur líka fyllilega fyrir sínu eitt og sér á salöt, sérstaklega vinsælt hjá þeim sem telja hitaeiningarnar. Gott er að dreypa Balsam ediki á steiktan fisk, einnig soðinn fisk eða jafnvel bæta örlitlu í vatnið þegar fiskur er soðinn. Það er líka notað til að bragðbæta ákveðnar sósur með kjöti og hakkréttum. Margar góðar uppskftir eru til þar sem Balsam edik er notað.
Senda á Facebook