Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Aioli

Aioli er án efa ein frægasta sósa Provence. Aioli þýðir eiginlega hvítlauksolíusósa eða hvítlauksmajones. Gott hvítlauksmajones er frábært með saltfiski, köldu kjöti og soðnu grænmeti.

  • 8 – 10 hvítlauksrif (fer eftir stærð rifjanna)
  • 5 dl. Il Raccolto olífuolía
  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. sítrónusafi

Merjið hvítlauksrifin og saltið í morteli þar til það er orðið að mauki.

Setjið hvítlaukinn í skál (í matvinnsluvél eða hrærivél). Hrærið eggjarauðunum saman við. Blandið ólífuolíunni í dropavís saman við hvítlaukinn og eggjarauðurnar á meðan stöðugt er hrært.

Að lokum er sítrónusafanum blandað saman við hvítlauksmajonesið. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !