Alíslensk rabbabarasulta með ætihvönn
Margir eru þeirrar skoðunar að við Íslendingar ættum að vera iðnari við það að neyta þeirra jurta sem vaxa í túnfætinum hjá okkur. Þar sé mikinn fjársjóð að finna. Ætihvönnin er ein merkasta jurt Íslandssögunnar.
Margar leiðir eru til þess að neyta ætihvannarinnar. Ein þeirra er að búa til afar bragðgóða og einfalda sultu úr stilkum hennar í bland við rabbabara. Ætihvönnin er þeirrar náttúru gædd að þegar maður sultar hana með rabbabara þarf maður að nota minni sykur en ella. Ætihvönnin gefur líka frá sér sætt bragð við suðu. Hér kemur ein alþýðuuppskrift sem aldrei bregst:
- 1 kg rabbabari
- 600 gr ætihvönn
- 400 gr. Hrásykur
Sjóðið saman í potti í klukkustund, alls ekki lengur. Kælið og setjið á krukkur. Verið dugleg að neyta hennar, hvort sem er ofan á brauð, með eftirréttum eða með matnum. Vegna minna sykurmagns geymist hún ekki mjög lengi en á móti kemur að hún er bráðholl, afar ljúffeng og maður fær alls ekki staðist hana.
Senda á Facebook