Alvöru amerískar súkkulaðibitasmákökur fyrir jólin

Alvöru amerískar súkkulaðibitasmákökur fyrir jólin
- með nýja kryddaða Yogi tea súkkulaðinu
Það jafnast fátt á við alvöru amersíkar súkkulaðibitasmákökur í desember og þessar eru svo hollar að þær má borða með mjög góðri samvisku. Og jafnvel þótt valið stæði um aðrar og “óhollari” erum við viss um að þessar yrðu frekar fyrir valinu.
Svo getið þið líka valið um hvort þið viljið hafa þær mjúkar eða stökkar, en hér kemur uppskriftin:
1 og 1/4 bolli hvítt spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
1/2 tsk. Maldon salt
1/2 tsk. Sonnentor kanill
200 gr. smjör
3/4 bolli Biona rapadura sykur
3/4 bolli púðursykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
3 bollar tröllahafrar
1 plata (100 gr.) Vivani 70% súkkulaði
1 plata Yogi tea súkkulaði Classic
1 plata Vivani mjólkursúkkulaði
Þeytið saman smjöri, sykri, púðursykri, eggjum og vanilludropum. Skerið súkkulaðið í grófa bita. Þurrefnunum (öllu nema haframjöli) er bætt smám saman út í. Að lokum er haframjöli og súkkulaðinu blandað saman við deigið. Best er að setja með teskeið á bökunarplötu (á smjörpappír) en nauðsynlegt er að hafa gott bil á milli því þær renna nokkuð út. Bakað við 200 gráður í 8 mínútur ef þær eiga að vera mjúkar en í 10 mínútur ef þær eiga að vera stökkar
Senda á Facebook