Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Baunir úr sveitinni

Þetta er réttur frá Ítalíu, nánar til tekið frá Puglia. Er hann gott dæmi um einfaldleika ítalska eldhússins þar sem hráefnið er látið njóta sín til fullnustu.

250 g hvítar baunir

Sósa, hrært saman:
2 dl Biona ólívuolía
½ dl balsamedik
2 msk maukaðar svartar ólífur – frá Montanini

Baunirnar eru lagðar í bleyti yfir nótt og soðnar við vægan hita í léttsöltuðu vatni í 45 mín. Baunirnar eru látnar kólna nokkuð í vatninu sem síðan er hellt af þeim þegar þær eru enn snarpvolgar og sósunni blandað saman við baunirnar. Í staðinn fyrir svart ólífumauk má einnig nota grænt sem er bragðmildara.

Þessi réttur er ljúffengur einn sér og með góðu brauði. Þá er þessi baunaréttur góður með fiski. Einnig má blanda klettasalati, rifnum gulrótum og fínt söxuðu harðsoðnu eggi saman við baunirnar og þá er komið ljómandi salat. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !