Bleikja - hrá, með kröftugri kryddsósu
- Bleikja
- ½ dl Balsamic edik
- ½ dl soja sósa
- 1 dl hrásykur
- safi úr ½ límóðu (lime)
- 1 msk rifinn börkur af hálfri límóðu
- 1 msk fínt rifinn engifer
- 1 tsk fínt saxaður rauður chili pipar
Balsamic edik og soja er hitað upp í um 40°C. Hrásykrinum er hrært saman við vökvann þar til hann leysist upp.
Setjið svo límóðusafa og börk út í sósuna og þá engifer og chili pipar. Sósan er látin kólna.
Bleikjan er skorin í þunnar sneiðar og stungið í sósuna í eitt augnablik. Þetta er mögnuð sósa, þétt og bragðmikil, sem á einstaklega vel við bleikjuna.
Senda á Facebook