Byggkaka "Á næstu grösum"
Heilsukaka ársins 2009:
Byggkaka “Á næstu grösum”
Sjaldan hefur eins holl kaka vakið jafn mikla lukku og byggkaka veitingastaðarins Á næstu grösum. Við hér í Heilsuhúsinu kjósum hana heilsuköku árins 2009 og væntum þess að hún verði vinsæl á veisluborðum landsmanna á næstu misserum. Byggkaka þessi er enda afbragðgóð og til marks um hvernig heilsufæði hefur náð nýjum sælkerahæðum.
Hráefni:
2 dl lífrænt haframjöl
2 dl lífrænar möndlur
0,5 dl lífrænt spelt
2 msk. hlynsíróp
smávegis vatn
salt
2 dl lífrænt bankabygg frá Vallanesi
1 dós lífræn kókosmjólk (400 ml)
0,75 dl hlynsýróp
salt
2 stk. grænepli í teningum
1 dl lífrænt kókosmjöl
250 g sykurlaus (helst lífræn) hindberjasulta
Aðferð:
Haframjölinu, möndlunum, speltinu, saltinu og hlynsírópinu er blandað saman, vatninu skvett út í og deigið hnoðað þar til að það tollir vel saman. 28 cm springform er klætt með smjörpappír og deiginu er komið fyrir í þannig að það formi fallega skel. Bakað við 150°C í um 10 mín., eða þar til deigið er fallega brúnað.
Sjóðið upp á bygginu í miklu vatni, þegar suðan hefur komið upp sjóðið í 5 mínútur, skiptið um vatn og skolið byggið, sjóðið þá í vatni sem rétt flýtur yfir byggið í 15 mínútur og bætið út í kókosmjólkinni, hlynsírópinu og saltinu. Hrærið vel. Þegar þetta er fulleldað, takið af hita, bætið út í eplunum og kókosmjölinu. Setjið allt í formið og kælið. Hrærið upp sultuna og smyrjið ofan á kökuna. Saðsöm og góð kaka.
Senda á Facebook