Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Dásamleg sælkera speltpítsa á grillið

Innblástur frá Jamie Oliver:
Dásamleg sælkera speltpítsa á grillið

Það er hægt að stytta sér verulega leið við pítsugerð þótt útkoman verði eftir sem áður sannkölluð sælkerapítsa. Mesta vinnan liggur oft í því að búa til botninn. Úr því má bæta með því að kaupa afar bragðgóða lífræna pítsabotna frá Biona í Heilsuhúsinu. Þeir henta vel hvort sem er á útigrill eða í ofninn. Ef þið grillið pítsuna á útigrilli -sem er næstum eins og að baka pítsu í eldofni- setjið hana á álbakka eða á álpappír. Grillið á lokuðu grillinu við háan hita í örfáar mínútur eða þar til osturinn bráðnar og pítsan fær á sig gullin lit.
Búa má til margar góðar pítsur með þessu hætti. T.d. er gott að setja á hana pítsasósu, mozzarellaost og lífræna tómata og eftir að hún hefur verið eldbökuð, setjið ofan á hana parmaskinku, klettasalat og parmesanost. Burstið þó botninn alltaf fyrst með ólífuolíu. Hér kemur uppskrift af einni alveg sérlega bragðgóðri pítsu sem er innblásin af sælkerakokkinum Jamie Oliver. Bragðið kemur á óvart. Meira og minna allt hráefni í pítsuna fæst í Heilsuhúsinu:


Pizza með mozzarella, ansjósum, chillí, kapers og steinselju
  • 4 ansjósur
  • ½ ferskur rauður chili, smátt skorinn
  • 1 tsk. kapers
  • ólífuolía
  • börkur og safi úr hálfri lífrænni sítrónu
  • 3 msk. pítsasósa (t.d. ítalska Epifine tómatsósan með basilíku)
  • ein mozzarellakúla, skorin í þunnar sneiðar
  • 1 msk fersk steinselja, smátt skorin
  • Maldon salt og pipar eftir smekk

Aðferð:
Skerið ansjósurnar í langsum og setjið í skál með niðurskornum chili, kapers, tveimur matskeiðum af ólífuolíu og berki af hálfri sítrónu. Kreistið sítrónusafann úti og blandið vel saman. Látið ansjósurnar marinerast í leginum í 15 mínútur.
Burstið botninn með ólífuolíu. Smyrjið pizzasósunni yfir og dreifið vel úr mozzarella ostasneiðunum. Raðið ansjósunum á ásamt kapersnum. Sáldrið steinselju yfir pítsuna og saltið og piprið. Hellið að lokum því sem eftir er að leginum yfir pítsuna. Bakið á grilli eða í ofni uns hún verður stökk og gullin. Við mælum eindregið með að fólki prófi að setja pítsuna á grillið.


Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !