Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Baunir - suðutími

Suðutími bauna Magn miðast við 500 g af þurrum baunum Tegund Magn í dl Tími í bleyti, klst Tími í suðu, mín. Þyngd eftirsuðu í g Aduki baunir 5,5 12 30... Meira

Uppskrift mánaðarins
Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum

170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu 4 tsk ólífuolía 1/2 dl  Balsamico, edik 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk 1... Meira

Ensk jólakaka með ávöxtum og hnetum

Þetta deig er í tvær kringlóttar kökur

  • 300 g smjör eða jurtaolía
  • 200 g hrásykur eða 2 dl Agave syrup
  • 5 egg
  • ½ dl soja mjólk
  • 300 g speltmjöl
  • 1 tsk. vínsteinslyftiduft
  • 125 g rúsínur
  • 125 g kúrennur
  • 50 g þurrkaðar ferskjur
  • 100 g gráfíkjur
  • 50 g þurrkaðar döðlur
  • 100 g súkkat
  • 50 g orangeat í bréfum
  • 12-14 st. kokteilkirsuber
  • 200 g hnetur t.d. pecan og heslihnetur

Aðferð og meðhöndlun:

Skerið ávextina smátt og saxið hneturnar gróft.
Hrærið saman smjöri og sætuefni, hrærið eggjunum saman við, einu og einu í einu.
Soja mjólkin hrærð saman við.
Hrærið hluta af speltmjölinu saman við ávexti og hnetur.
Vínsteinslyftiduftið og restin af speltmjölinu er hrært út í deigið með sleif. Ávextirnir í speltmjöli eru síðan hrærðir rólega út í blönduna.
Smyrjið 2 kringlótt mót, deilið deiginu í mótin.
Hitið ofninn í 160° C, blásturofn í 140°C, bakið kökurnar neðst í ofninum í 2 klst.
Takið kökurnar úr ofninum, kælið, setjið á kökugrind og látið kólna alveg.
Köldum kökunum er síðan pakkað í álpappír, lokað vel og geymdar á köldum stað.
Algengt er að bragðbæta kökuna með því að dreypa yfir hana víni öðru hverju til jóla, t.d. sérrí, viskí eða rommi. Sumir byrja í vikunni fyrir jól, pikka í kökuna með fíngerðum prjóni, hella svo örlitlu af víni yfir hana daglega til jóla.
Einnig má hjúpa jólakökuna með marsipani og skreyta eftir smekk.
Senda á Facebook