Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Frábærar hollar uppskriftir frá Udo's Choice

Rétt um einn þriðja af öllum veikindum er hægt að rekja til slæms mataræðis. Þar af leiðandi er hægt að minka verulega líkurnar á að fá sjúkdóma með því að vanda þá fæðu sem við borðum.

Þetta merkir í raun að við borðum of mikið af hlutum sem eru slæmir fyrir okkur en ekki nóg af því sem er okkur hollt. Þetta greiðum við fyrir með ýmiskonar kvillum og veikindum.


Hér á eftir koma 3 frábærar uppskriftir sem eru bæði hollar og góðar á bragðið.


Morgunverður í A-Glasi

Höf. Anya Arkens . . . (Passar í uþb 5 glös)

"Þetta er okkar grunn morgunverðar uppskrift. Síðan notum við samsetningu af safa við hæfi og ávexti eftir árstíðum. Þetta er unaðsleg uppskrift sem fólk getur auðveldlega aðlagað eftir þörfum og smekk hvers og eins. Í rauninni er hægt að bæta öllum vörum Udo's í þessa uppskrift.

  • 4 glös ferskur lífrænn gulrótar safi (við mælum með safanum frá Biotta)
  • 1 ferskur og 1 frosinn banani
  • ½ glas mjúkt tofu
  • 2 matskeiðar fersk "Flax seed" olía
  • 4 matskeiðar "Udo's Oil Blend"
  • 4 matskeiðar "Udo's Beyond Greens"
Setjið hráefnið í blandara og hafið á fullum krafti í ca. 1 mínútu. Hellið í glös og berið fram. Verði ykkur að góðu.



MANGO PROTEIN SHAKE (Mjólkurlaus)

Höf. Usha Menard . . . (Passar í 12 lítil glös)

"Þetta er auðveld og gómsæt leið til að hefja daginn. Mér finns best að nota bragðlaust prótein duft en set svo ávexti að eigin vali. Ég set nóg af mangó til að fá sætt brað, en samt ekki of mikið. Munið að þeim mun meira af ávöxtum sem þið borðið gæti það komið niður á þyngd ykkar þar sem ávextir innihalda mikinn sykur. (Carbohydrates)."

  • 8 glös vatn
  • 1/3 glas prótein duft, uþb. 55 gr. (við mælum með Spirutein Soyja próteini)
  • ½ mango
  • 2 Matskeiðar "Udo's Oil Blend Omega 3 6 9"
  • 2 Ísmola
  • Setjið hréfnið í blandara og blandið í uþb 1/2 mínútu eða þar til þetta hefur samlagast vel. Hellið í glös og berið fram. Verði ykkur að góðu


Caesar Salad fyrir 2

Bragðgóð leið til að gera Udo's olíur að ómissandi hlut í daglegum mat.

  • 1/2 Haus Romaine salat, þvoið og þurkið, brjótið í 2 hluta
  • 1 ansjósu sneið (kramin)
  • 1 kramið hvítlauksrif
  • 1 matskeið sítrónu safi (t.d Gut&Gerne - lífrænn)
  • 2 Matskeið Udo's Mayonnaise (sjá Udo's Mayo uppskrift)
  • 1/4 bolli rifinn Parmesan ostur
  • 1/2 bolli ristað brauð
Brauð: Hitið ofninn 375° F. Skerið uppáhaldsbrauðið ykkar í bita. Setjið í ofninn og hafið þar til brúnirnar á brauðinu eru farnar að brúnast aðeins og takið þá úr ofninum og hellið smá Udo's 3 6 9 olíu yfir.

Salatið: Hellið Romain salatinu í skál, blandið ansjósunum, hvítlauknum, sítrónusafnum og Udo's mayonnaise saman í skál. (sjá Udo's Mayo). Helliið afganginum af ostinum útá og bætið brauðbitunum við í skálina. Passar fyrir 2.

Verði ykkur að góðu.




Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !