Glútenfrítt bananabrauð
175 g glutenfrítt hveiti (Doves Farm)
50 g sólblómafræ (Lífræn frá Heilsu)
3 msk maíssterkja (Biovita)
3 tsk vínsteinslyftiduft (Biovita)
2 tsk natron
1 tsk vanillusykur
3-4 stk. meðal stórir bananar, vel þroskaðir
½ dl grapeseed olía (Meridian)
½ dl hlynsíróp (Vermont Mable sirup)
2 msk sítrónusafi
2 egg vistvæn
- Blandið þurrefnunum saman í skál.
- Blandið saman í aðra skál, olíunni, sírópinu og sítrónusafanum.
- Stappið bananana með gaffli, ekki mauka þá um of og blandið þeim varlega út í sírópsblönduna.
- Hrærið þurrefnum og egginu saman við. Hrærið ekki meira en nauðsyn krefur.
- Setjið í stórt formköku-form og stráið sólblómafræjum yfir.
- Bakið við 160°C á blæstri í 50-60 mínútur. ATH! Ofnar baka mismunandi.
Senda á Facebook