Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Gulrótarsúpa með engifer og klementínum

  • 2 msk sólblómaolía
  • 2 laukar, saxaðir
  • 2 cm ferskur engifer, afhýddur og fínt skorinn
  • 4-6 gulrætur (um 500 g), skornar í þunnar sneiðar
  • 4 bollar grænmetissoð úr Plantaforce
  • Safi úr 5 klementínum (um 3/4 bolli). Má líka vera mandarínu- eða appelsínusafi.
  • Sjávarsalt og pipar úr kvörn


Steikið laukinn upp úr olíunni í potti þar til hann hefur fengið gyllta áferð. Bætið við engifer og gulrótum og steikið í nokkrar mínútur í viðbót. Grænmetissoðinu og klementínusafanum bætt út í, saltað og piprað eftir smekk. Náið upp suðu og sjóðið við vægan hita þar til gulræturnar eru orðnar meyrar (u.þ.b. 20 mínútur).

Sigtið soðið frá og geymið það. Maukið grænmetið í matvinnsluvél með örlitlu af soðinu. Bætið soðinu síðan út í þegar grænmetið hefur maukast að fullu og hrærið vel saman.


Hitið súpuna upp aftur ef þess gerist þörf. Berið fram skreytt með klementínu og/eða lime berki.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !