Heilsuhristingar
Biotta heilsuhristingar
Það er aldrei of oft minnt á góða heilsukokteila. Biotta safarnir hafa fyrir löngu sannað gildi sitt og eru mörgum að góðu kunnir. Biotta framleiðir ávaxta- og grænmetissafa eingöngu úr lífrænt ræktuðu hráefni og hefur í áranna rás þróað framleiðsluaðferðir sem varðveita næringarefni hráefnisins bæði í vinnslu og við geymslu. Hér eru þrjár tegundir afar ljúffengra Biotta heilsuhristinga:
Pink velvet heilsuhristingur
Þessi er ótrúlega fallegur á litinn og hitaeiningasnauður!
- 1 dl rauðbeðusafi
- 2 dl nýkreistur eplasafi (úr 3-4 eplum) eða Vita Verde eplasafi
- 1 tsk. sítrónusafi
Pressið safann úr eplunum (eða notið Vita Verde lífrænan eplasafa). Malið klaka í blandaranum og setjið safana í blandarann. Hrærið í góða stund.
Bleiki pardusinn heilsuhristingur
Rauðbeðurnar eru mjög trefjaríkar, innihalda góð (hægvirk) kolvetni og mjög fáar hitaeiningar. Þær gefa mikið magn af vítamínum og hafa góð áhrif á heilsuna. Hollustuna í perunum og sítrónunum þekkja allir!
- 1 dl Biotta rauðbeðusafi (Beetroot Juice)
- 2 dl nýkreistur perusafi (úr 2 perum)
- 1 tsk nýkreistur sítrónusafi (úr ½ sítrónu)
Malið klaka í blandara, kreistið safa úr perunum og sítrónunni í safapressu, setjið alla safana í blandarann með möluðu klökunum í og blandið í nokkrar sekúndur.
Setjið í fallegt glas með röri.
Granni heilsuhristingur
Þessi er frískandi, hollur og ótrúlega góður. Þú drekkur bókstaflega í þig hollustuna.
- 1 dl Biotta granateplasafi (Pomegranate Juice)
- 1 dl nýkreistur perusafi (úr 1 peru)
- 1 tsk nýkreistur sítrónusafi (úr ½ sítrónu)
- 1 cm engiferrót
Malið klaka í blandara, kreistið safa úr peru, sítrónu og engiferrót í safapressu, setjið peru-engifer-sítrónu safann ásamt pomegranate safanum í blandarann með möluðu klökunum í og blandið í nokkrar sekúndur.
Setjið í fallegt glas og skreytið með röri og sítrónusneið yfir glasbarmi
Senda á Facebook