Kraftmikil spergilkálssúpa
Einn besta og jafnframt hagstæðasta næringin á krepputímum eru næringarríkar súpur. Þær eru saðsamar og hafa margar rannsóknir sýnt að fólk er lengur að melta súpu en fasta fæðu. Tilvalið er að elda sjálfur súpur frá grunni, og helst mikið af henni í einu svo hægt sé að taka með sér slurk í vinnuna daginn eftir. Flestar súpur verða gjarnan betri á öðrum og þriðja degi. Það á við um þessa spergilskálssúpu.
Hafi maður eldað súpuna sjálfur veit maður líka upp á hár hvaða næringu hún hefur að geyma. Mikilvægt er að velja sér kraft í súpuna sem er án MSG - og allar tegundir krafts sem fást í Heilsuhúsinu án MSG. Við mælum t.d. með Plantaforce, jurtakrafti sem unninn er úr lífrænt ræktuðu grænmeti og kryddjurtum.
Innihald súpunnar: - 1 meðalstór blaðlaukur
- (aðeins hvíti hlutinn), skorinn í sneiðar
- 2 bollar þunnskorinn, zucchini
- 2 bollar spergilkálsblóm
- 2 hvítlauksrif, kramin
- 1 tsk ferskt eða þurrkað tímían
- 1 lárviðarlauf
- 1 tsk Maldon salt
- ¼ teningur, eða sambærilegt úr dós grænmetiskraftur
- 1 og ¼ bolli sojamjólk
- nýmalaður ferskur pipar
- 1 lítri vatn
-Setjið saman blaðlauk, kúrbít, spergilkál, hvítlauk, timían, lárviðarlauf og Maldon salt ásamt grænmetiskrafti í pott. Látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í 30 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt.
-Hellið sojamjólkinni út og takið lárviðarlaufið upp úr. Blandið súpuna í kröftugum blandara þar til hún verður mjúk og rjómakennd. Kryddið með nýmöluðum svörtum pipar.
-Þessi súpa dugir fyrir 6 manns.
Senda á Facebook