Linsusalat með sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum
- 170 g/2 dl linsur, Puy, þurrkaðar
- 80 g/11/2 dl sólþurrkaðir tómatar í kryddlegi
- 80 g/11/2 dl ætiþistlar marineraðir í olíu
- 4 tsk ólífuolía
- 1/2 dl Balsamico, edik
- 1 tsk hvítlaukur eða hvítlauksmauk
- 1 tsk Herbamare jurtasalt
Hreinsið hugsanlegar skemmdar linsur og smásteina í burtu og skolið linsurnar vel. Setjið linsurnar í vatn (þrefalt vatnsmagn þeirrar þyngdar sem á að sjóða) og látið suðuna koma upp. Sjóðið við vægan hita í um 15 mínútur. Hellið vatninu af linsunum og kælið. Skerið sólþurrkuðu tómatana í litla bita. Skerið ætiþistlana í litla bita. Blandið ólífuolíu, balsamediki, pressuðum hvítlauk/hvítlauksmauki, jurtasalti, sólþurrkuðum tómötum og ætiþistlum saman við linsurnar. Þetta salat er gott sem meðlæti með kjöt-, fiski- eða grænmetisréttum eða sem hluti af máltíð með samloku og súpu.
Senda á Facebook