Möndlumuffins
- 200 g möndlur, gróft saxaðar
- 100 g möluð hörfræ
- 1 þroskuð pera, banani eða 1 dl eplamauk
- 1 gulrót, fíntrifin
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 3 egg
- salt á hnífsoddi
Einnig er hægt að nota aðrar hnetutegundir eða fræ.
Einnig má setja ber í deigið.
Stillið ofninn á 200°.
Blandið saman þurrefnum og ávöxtum.
Bætið gulrótinni út í og hrærið deigið saman með eggjunum.
Ef deigið er þurrt má bæta við vatni eða eplasafa.
Skiptið deiginu í 20 muffinsform og bakið í 12-16 mín.
Senda á Facebook