Pasta með villisveppum og papriku
pasta fyrir fjóra
- 4 dl saxaðir villisveppir, t.d. lerki-, furu- eða kóngssveppir
- 2 msk pressaður sítrónusafi
- 3 msk góð ólífuolía
- 1 laukur, skorinn í teninga 1x1 cm
- 1 lauð paprika, skorin í teninga 1x1 cm
- 1 græn paprika, skorin í teninga 1x1 cm
- 2 msk sherrýedik
- salt og hvítur pipar eftir smekk
Blandið saman sveppum og sítrónusafa.
Hitið olíuna og steikið laukinn við vægan hita. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur er paprikunni bætt í pottinn og léttsteikt í 5 mínútur.
Setjið sveppina í pottinn, kryddið með salti og pipar og steikið í 3 mínútur. Bætið því næst sherrýedikinu saman við.
Sjóðið pastað. Deilið soðnu pastanu á 4 diska og dreifið sveppasósunni yfir.
Þetta er aldeilis yndislegur réttur og þótt ótrúlegt sé, gerir sherrýedikið kraftaverk.
Senda á Facebook