Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Pasta vongóða veiðimannsins

  • 1 dós Cannelini baunir
  • 2½ dl gott grænmetissoð
  • 2 msk ólívuolía
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 rósmarínkvistur
  • 200 g reyktur lax
  • Herbamare kryddsalt
  • hvítur pipar úr kvörn
  • pasta, skrúfur eða slaufur eða annað pasta


Hellið vatninu af baununum. Blandið saman baunum og grænmetissoði og maukið í matvinnsluvél eða með töfrasprota.

Rósmarín og hvítlauksrif eru steikt í ólífuolíunni við fremur vægan hita. Þegar rósmarínið fer að dökkna er hann fjarlægður úr olíunni ásamt hvítlauknum.

Baunamaukinu er blandað vel saman við olíuna. Baunahræran er krydduð með hvítum pipar og ögn af Herbamare kryddsalti.

Þá er pastað soðið og laxinn skorinn í örþunna strimla, - hver strimill að svipaðri stærð og eldspýta.

Þegar pastað er soðið er vatninu hellt af því og baunahrærunni og laxinum blandað vel saman við pastað.

Þetta er bragðgóður en óvenjulegur pastaréttur sem kemur svo sannarlega á óvart.
Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !