Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Spelt pönnukökur með hlynsírópi

Pönnukökur og hlynsíróp í bústaðinn

Góð leið til þess að gera öllum til geðs í sumarbústaðnum; börnum, fullorðnum, bragðlaukunum og heilsunni er að fá sér hollar amerískar pönnukökur úr spelti með hlynsírópi morgunmat. Í Heilsuhúsinu fæst nú afar gott lífrænt Maple sirup (hlynsíróp) frá Kanada sem hleypir ekki öllu í bál og brand í líkamanum þótt þess sé neytt í nokkuð ríkum mæli og einnig úrvalsspelt frá Doves farm sem og lífrænir bananar, ef vill til þess að fullkomna morgunmatinn.

Amerískar bráðhollar pönnukökur:
  • 100 g spelt frá Doves Farm
  • ½ tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 egg
  • 1 msk ólífuolía, helst lífræn
  • 3 dl mjólk eða sojamjólk

Blandið þurrefnum saman, hrærið saman eggi, ólífuolíu og mjólk í aðra skál, hellið síðan út í þurrefnin og hrærið vel.
Steikið á vel heitri pönnu í ca. 30 sek á hvorri hlið (hafið að meðalstærð, ekki íslenskri pönnukökustærð).
Úr þessu fást um það bil 10 pönnukökur. Ef margir eru samankomnir í bústaðnum má margfalda uppskriftina.
Best er að fá sér eina pönnuköku í senn með nokkrum sneiðum af banönum og hella svo vænni slettu af lífrænu hlynsírópi yfir. Namm. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !