Tómatsúpa með smjörbaunum
1/2-1 rauður chili pipar - 1 laukur
- 1/2 (3-5 rif) hvítlaukur
- 1 rauð paprika
- hvítvínsedik-sletta (svona 2-3 msk.)
- 1 dós tómatar
- tómatpúrra 2-3 msk.
- Smá vatn
- 1/2 teningur af grænmetiskrafti
Krydd:
- cayenne pipar
- sæt paprika
- sterk paprika
- sjávarsalt
- hvítur pipar
- 1 dós smjörbaunir
- rifinn parmesan
Skerið lauk, papriku, chili pipar og hvítlauk smátt. Setjið á pönnu með smá olíu, fyrst laukinn. Þegar hann er að verða glær, þá allt hitt á pönnuna. Bætið við smá slettu af hvítvínsediki, næst tómatpúrru og tómötum í dós ásamt smá vatni og krafti. Passið að setja ekki of mikið vatn svo súpan verði ekki of þunn. Kryddið til eftir smekk og setjið svo baunir út í. Dreifið yfir smá af rifnum parmesan áður en borið er fram.
Súpuuppskriftinn er eftir Sigurveigu Káradóttur eiganda Matarkistunnar en þessi uppskrift birtist í Heilsufréttum í september 2008:
Senda á Facebook