Heilsuhúsið

Verslanir
  • Laugavegur s. 552 2966
  • Lágmúla s. 578 0300
  • Kringlunni s. 568 9266
  • Smáratorgi s. 564 5666
  • Selfossi s. 482 3915
  • Akureyri s. 462 1889
  • Reykjanesbær s. 578 5560
Heilsumoli vikunnar
Biotta Digestive

Sveskjur og fíkjur eru þekktar fyrir að vera mild en afar áhrifarík áhrif hjálp til að hraða fæðunni í gegnum meltingarfærin. Biotta Digestive er sveskjusafi blandaður fíkjuþykkni ásamt epla- og þrúgu... Meira

Uppskrift mánaðarins
Bragðsterkur engifer-lax

1 kg laxaflak (flök) 1 dl hrásykur 1 dl Maldon hafsalt 4 msk rifinn engifer rifinn börkur af lífrænt ræktaðri sítrónu 1 rauður chili belgur, skorinn í þunna strimla Blandið öllum kryddefnum saman. Le... Meira

Villisveppasósa

  • 25 g af þurrkuðum sveppum
  • 2 msk fínt saxaður laukur
  • eitt fínt saxað hvítlauksrif
  • 2 tsk Plantaforce jurtakraftur
  • 1 msk smjör
  • ½ tsk timian
  • Herbamare kryddsalt eftir smekk
  • rjómi


Skolið sveppina fyrst í stórri skál af vatni til að losna við hugsanleg sandkorn. Best er að sjóða upp á þeim, fyrir 20 g af sveppum er hæfilegt að nota 2-3 dl af vatni. Látið sveppina vera í vatninu í 15-20 mín eða lengur.

Laukur og hvítlaukur eru steiktir í potti í smjöri við frekar vægan hita þar til þeir eru mjúkir.

Síið seyðið af sveppunum, skerið þá smátt ef vill, bætið þeim í pottinn og steikið þá með í 5 mín.

Hellið seyðinu í pottinn, en gætið þess að botnfallið fylgi ekki með, eða síið það fyrst í gegnum kaffifilter til að fyrirbyggja að hugsanleg sandkorn lendi með í sósunni.

Bætið Plantaforce í, hrærið og látið sveppina sjóða þar til að rúmur helmingur af vökvanum hefur gufað upp. Þá er rjómanum hellt í pottinn, magn eftir smekk. Segja má að því þykkari sem sósan er því bragðmeiri er hún. Látið nú sósuna sjóða við vægan hita í 5 mínútur, þá er sósan bragðbætt með timían og Herbamare.

Fyrir þá sem vilja, má hafa með henni ferska sveppi. Þá eru um 100 g af sneiddum ferskum sveppum steiktir með villisveppunum. Ef notaðir eru ferskir sveppir má sósan vera aðeins þynnri en ella.

Bragðbæta má sósuna með skvettu af Portvíni eða sojasósu - Portvín er þó betra. Senda á Facebook
Letur A +A
Vildarklúbbur Íbúar Heilsuhússins !