Heilsuhúsið
Vesturlandabúar gera sér æ betur grein fyrir mikilvægi heilbrigðra lifnaðarhátta. Flestum er orðið kunnugt um að hreyfing og hollt mataræði leika lykilhlutverk í baráttunni gegn margvíslegum velmegunarsjúkdómum. Færri vita að ýmis aukaefni, eins og skordýraeitur, tilbúinn áburður, MSG, rotvarnarefni og fleira, geta fylgt matvælum og jafnvel vítamínum og bætiefnum en þau geta haft verulega skaðleg áhrif á heilsu okkar.
HREIN HOLLUSTUVARA
Í meira en 30 ár hefur Heilsuhúsið verið leiðandi í sölu vítamína, bætiefna, náttúrulyfja; á lífrænt ræktuðum matvælum og hvers kyns öðrum heilsuvarningi. Aukin vitund og vakning á sviði náttúrulækninga hefur leitt til þess að læknar vísa skjólstæðingum sínum í síauknum mæli á jurtameðul og bætiefni í verslunum okkar. Heilsuhúsið býður viðskiptavinum sínum eingöngu hreina hollustuvöru til þess að auðvelda þeim að ástunda heilbrigt líferni.
RÁÐGJÖF
Við hjá Heilsuhúsinu höfum ætíð lagt ríka áherslu á ráðgjöf og persónuleg tengsl við viðskiptavini okkar. Margir leita til starfsfólks Heilsuhússins til þess að fá ráð við ýmsum kvillum og í seinni tíð nýta æ fleiri sér þjónustu okkar í forvarnarskyni. Vönduð ráð varðandi vítamín og bætiefni eru ein leiðin til þess. Einnig leita margir ráða varðandi matreiðslu á hollum fæðutegundum og notkun á náttúrulegum snyrti- og hreinlætisvörum. Ef þig vantar upplýsingar eða ráðgjöf um ákveðnar hollustuvörur; EKKI HIKA VIÐ AÐ LEITA TIL OKKAR!
NÁMSKEIÐ OG FYRIRLESTRAR
Við hjá Heilsuhúsinu höfum yfir þriggja áratuga reynslu af faglegri heilsuráðgjöf. Einnig höldum við reglulega námskeið og fáum til liðs við okkur framúrskarandi fyrirlesara til þess að fræða okkur um heilsufarsmál og hollustu. Þar hafa oftar en ekki verið á ferð færustu heilsusérfræðingar á sínu sviði hér heima og erlendis.
ÍBÚAR HEILSUHÚSSINS
Við hjá Heilsuhúsinu höfum ætíð gert okkur far um að halda traustu sambandi við viðskiptavini okkar og njóta íbúar Heilsuhússins því sérstakra afsláttarkjara einn dag í mánuði, auk sérstakra tilboða á hinum ýmsu vörum. Einnig safnast punktar á íbúakortið í hvert skipti sem verslað er í Heilsuhúsinu alla daga mánaðarins sem hægt að greiða fyrir vöru og þjónustu með áunnum punktum.
Til þess að gerast íbúi Heilsuhússins þarft þú aðeins að skrá þig, þú getur skráð þig hér til hliðar á síðunni undir Vildaklúbbur Íbúa Heilsuhússins.
Ávinningur Íbúa Heilsuhússins:
- Afsláttardagur einu sinni í mánuði
- Punktasöfnun alla aðra daga mánaðarins
- Upplýsingar um námskeið og fyrirlestra
- Rafrænt mánaðarlegt fréttabréf og margt fleira.
HEILSUPÓSTURINN
Heilsupósturinn er sendur rafrænt á netfang íbúa Heilsuhússins. Þar er fjallað um heilsutengd málefni líðandi stundar, miðlað fróðleik af bestu gerð og greint frá tilboðum á hverjum tíma.
HEILSUBARINN
Heilsubarinn í Heilsuhúsinu í Kringlunni ,Lágmúla og á Laugarvegi hefur slegið í gegn og er orðinn fastur viðkomustaður fjölda fólks, sem kemur til að fá sér glas af nýpressuðum ávaxta- eða grænmetissafa. Allar safategundirnar eru úr lífrænt ræktuðum ávöxtum og grænmeti og því bráðhollar, orkugefandi og alveg sérlega bragðgóðar.
Senda á Facebook