Verðlaunahúðvörur frá Primex á Siglufirði. Lífvirka efnið í ChitoCare húðvörunum er kítósan, náttúrulegt undur úr hafinu við Íslandsstrendur. Kítósan ver húðina, dregur úr roða og pirringi og viðheldur raka. ChitoCare hentar öllum húðgerðum og eflir náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar. Rannsóknir á kítósan sýna fram á einstaka eiginleika til að græða húð og vinna gegn örmyndun.

Primex hefur hlotið Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrir nýstárlega notkunarmöguleika á sjávarafurðum.