Græðikremið inniheldur lífrænan vallhumal, morgunfrú og kamillu sem notaðar hafa verið öldum saman gegn húðsjúkdómum. Það inniheldur einnig hátt hlutfall af lífrænu kakó- og sheasmjöri sem ásamt kvöldvorrósa- og E- vítamínolíu gefa nauðsynlegan raka og mýkt. Græðikremið inniheldur einnig lífrænar lavender- og piparmyntu ilmkjarnaolíur sem eru kláðastillandi og kælandi. Einnig er mælt með innvortis inntöku af tinktúrunni rauðsmára og gulmöðru við exemi og sóríasis.
Innihald: Vatn, ólífuolía (Olea europaea), vallhumall* (Achillea millefolium), kamilla* (Matricaria recutita), morgunfrú* (Calendula officinalis),sheasmjör* (Bytyrospermum parkii), kakósmjör* (Theobroma cacao), cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, kvöldvorrósarolía* (Oenothera biennis), E-vítamín (tocopherol), phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, lavender* (Lavendula officinalis), piparmynta* (Mentha piperita). *lífrænt