Vísindamenn hafa sjaldan séð annað eins

24 Feb 2015

Astaxanthin & Blackcurrant frá Higher Nature er líklegast öflugasta náttúrulega andoxunarefnið sem uppgötvað hefur verið. Þegar vísindamenn komust á snoðir um virkni þess áttuðu þeir sig á því að um einstakt efni var að ræða. Astaxanthin er það efni sem gefur laxi, rækjum og flamingóum þennan djúpa fallega bleika lit og laxi að auki stökkkraftinn. Rannsóknir á mönnum hafa sýnt að Astaxanthin skerpir sjónina, eykur frjósemi, eflir ónæmiskerfið og styrkir hjarta- og æðakerfið, eflir meltinguna, eykur vöðvaþol og dregur úr sýnilegri öldrun húðar. 

Astaxanthin hefur verið kosið öflugasta ofurfæða jarðar (superfood) á hinum virta heilsu og vísindavef www.naturalnews.com.  Þar sem Astaxanthin er fituleysanlegt flyst það beinustu leið til fitumólíkúlanna í líkamanum sem þýðir að það sest að í húðinni -sem er að mestu samansett úr fitu og vatni.

Axtaxanthin er sérlega gott fyrir skokkara, íþróttafólk og þá sem stunda þrekþjálfun að einhverju marki. Það eykur úthald og styrk vöðva og rannsóknir sýna að þeir sem neyta þessa efnis að jafnaði eru mjög fljótir að ná sér eftir álag. Þar með talið lagar Axtaxanthin fljótt harðsperrur og eymsli og kemur jafnvel í veg fyrir þær. Eins og gefur að skilja nýtur Astaxanthin því mikillar hylli íþróttafólks. Það sem meira er; Astaxanthin er talið vernda heilann gegn Alzheimer, augun og húðina gegn UV-geislum sólarinnar og allt taugakerfið gegn skemmdum af völdum sindurefna. Það væri í auðveldara að telja það upp sem Astaxanthin nær ekki að bæta. 
Sjávarþörungarnir í Astaxanthin frá Higher Naturre heita Haematococcus pluvialis en þeir eru hvorki meira né minna en 550 sinnum andoxunarríkari en E-vítamín. 

Higher Nature hefur svo enn breikkað virkni Astaxanthin með því að blanda saman við það sólberjum. Sólber eru ríkuleg uppspretta andoxunarefnanna anthocyanidins, polyphenols sem og C-vítamíns. Sólber geyma einnig mikið magn sinks, kalks, járns, kalíums, magnesíums, fólínsýru og A- og B-vítamína.

Þar sem Astaxanthin er fituleysanlegt fer best að á að taka það með mat sem inniheldur t.d. olífuolíu eða bætiefnum eins og Laxalýsi.


Nokkrar staðreyndir um Astaxanthin: 

Eitt öflugasta andoxunarefni sem um getur. Rannsóknir styðja að það er óhemju heilsusamlegt, sérstaklega er varðar sjón, frjósemi, ónæmiskerfi, hjarta, æðar, meltingu, vöðva, þol og sýnilega öldrun.

  • Minnkar og kemur jafnvel í veg fyrir harðsperrur
  • Er 550 sinnum öflugra andoxunarefni en E-vítamín
  • Verndar húðina gegn UVA og UVB geislum sólarinnar
  • Unnið úr hreinum og ómenguðum sjávarþörungum.
  • Verndar augun gegn sindurefnum og skemmdum af völdum UV-geilsa.

Sjá nánari upplýsingar á www.highernature.co.uk