Humble Brush umhverfisvænir tannburstar fyrir börn og fullorðna

02 Feb 2017

Humble tannburstarnir eru umhverfisvænir tannburstar úr bambus. Fyrir hvern seldan bursta gefur framleiðandinn andvirði bursta til Humble Smile Foundation, sem hjálpa fátækum um allan heim með tannhirðu. 

 

Umhverfisvænn tannbursti - sá vinsælasti í heimi!
Humble Brush tannburstarnir eru vandaðir og þægilegir tannburstar úr bambus og Nylon 6 sem brotnar hraðar niður í náttúrunni en önnur nælon. Burstarnir brotna því niður í náttúrunni og eyðast, ólíkt plastburstunum sem heimsbyggðin hendir milljónum af í ruslið á hverju ári.

Humble Brush tannburstar eru:

  • Sænsk hönnun
  • Hannaðir af tannlæknum
  • Góðir fyrir plánetuna okkar
  • Hjálpa fátækum víða um heim
  • Vegan staðfestir af The Vegan Society

Hjálpaðu öðrum
Fyrir hvern seldan Humble Brush gefur fyrirtækið andvirði bursta til Humble Smile Foundation til að hjálpa fátæku fólki.

Gerðu margfalt góðverk með því að kjósa umhverfisvænt og með því að hjálpa fátækum með tannhirðu.

Burstarnir fást í verslunum Heilsuhússins um allt land og í netverslun Heilsuhússins.